Lumar þú á góðri hugmynd?

Eldri kona

Velferðarsvið Reykjavíkurborgar hefur fengið styrk frá félagsmálaráðuneytinu til þess að bjóða upp á fjölbreytt og skapandi verkefni í félagsstarfi eldri borgara í sumar.

Markmiðið er að rjúfa félagslega einangrun sem orðið hefur vegna COVID-19 og virkja fullorðið fólk og eldri borgara sem orðið hafa fyrir hvað mestum áhrifum af faraldrinum.

Listasmiðjur, dans og leikfimi – Hvað fleira?

Námskeiðin verða haldin á félagsmiðstöðvum velferðarsviðs. Félagsmiðstöðvarnar eru opnar fyrir alla borgarbúa og þar er boðið upp á viðburði, smiðjur og námskeið. Hvað dettur þér í hug? Hreyfiþjálfun, dans, ferðir með leiðsögn, rafíþróttir, fluguhnýtingarnámskeið, sagnfræði, hugleiðsla, jóga, orku- og jafnvægisæfingar eða eitthvað allt annað. Öllum nýjum hugmyndum um námskeið og hópastarf, sem gleður og endurnærir, er tekið fagnandi.

Til þess að auka við fjölbreytta dagskrá auglýsir velferðarsvið nú eftir samstarfsaðilum til að vinna að verkefninu. Ef þú ert með hugmynd, vinsamlegast sendu tölvupóst til:

helga.benediktsdottir01@reykjavik.is

Umsóknarfrestur er til 26. júní 2022