Leyfi hefur verið veitt fyrir afnotum og tímabundnum lokunum á nokkrum götum og svæðum borgarlandsins vegna kvikmyndatöku vegna myndarinnar Heart of Stone. Umsvif og lokanir verða misjafnlega miklar eftir dögum en tökurnar fara fram dagana 2. - 5. apríl 2022. Leyfishafar munu hleypa umferð í gegn á flestum stöðum (ekki Skólavörðuholti) þegar ekki er verið í beinum tökum.
Helstu atriði varðandi þetta afnotaleyfi eru:
Laugardagur 2. apríl frá kl. 07 - 13
Sæbraut lokuð frá Snorrabraut að Hörpu, einnig verður Kalkofnsvegur lokaður að Geirsgötu. Umferð verður vísað framhjá lokunarsvæði með hjáleiðamerkingum.
Til viðbótar verður götulokun Sæbrautar til vesturs frá Kirkjusandi til Katrínartúns einnig í gildi á laugardeginum 2. apríl frá kl. 12 - 17. Samþykki Vegagerðarinnar fyrir ofangreindum götulokunum liggur fyrir.
Sunnudagur 3. apríl frá kl. 07 - 15
Sæbraut lokuð frá Snorrabraut að Hörpu, einnig verður Kalkofnsvegur lokaður að Geirsgötu. Aðgangur að Hörputorgi verður að hluta takmarkaður. Umferð verður vísað framhjá með hjáleiðamerkingum. Samþykki Vegagerðarinnar fyrir lokun á Sæbraut og Kalkofnsvegi liggur fyrir.
Mánudagur 4. apríl frá kl. 07 - 17
Skólavörðuholt - Götulokun frá Frakkastíg við Bergþórugötu að Eiríksgötu við Mímisveg. Efsti hluti Skólavörðustígs frá Kárastíg verður að botngötu. Aðgengi að Hallgrímskirkjutorgi verður takmarkað þar sem tökur fara fram af mótorhjóli sem fer yfir torgið. Leyfishafar hafa upplýst Tækniskólann og leikskólann Grænuborg um skert aðgengi þennan dag. Einnig hafa íbúar og rekstaraðilar í nágrenninu verið upplýstir um lokunina.
Hugsanlegt er að reynt verði að fara í þær tökur sem skipulagðar eru á þriðjudeginum 5. apríl á Frakkastíg, einnig á mánudeginum 4. apríl. Ef það tekst myndu takmarkanir þann 5. apríl falla niður.
Þriðjudagur 5. apríl frá kl. 07 - 17
Götulokun á Frakkastíg í tveimur hlutum. Annars vegar frá gatnamótum Frakkastígs við Hverfisgötu að Sæbraut. Hins vegar á Frakkastíg við gatnamót Bergþórugötu að gatnamótunum við Hverfisgötu. Laugavegur verður lokaður við Frakkastíg. Íbúar og rekstraraðilar í nærumhverfinu hafa verið upplýstir um lokunina og skert aðgengi á svæðinu.
Ýmis atriði
Fjölmargar bifreiðar og önnur tæki fylgja kvikmyndatökunum og því verða veitt afnot af neðangreindum bílastæðum og svæðum á borgarlandi. Keilur verða staðsettar í stæðin jafnóðum og þau losna. Leyfishafa ber að semja við Bílastæðasjóð um afnot af gjaldskyldum bílastæðum:
Bílastæði við Hallgrímskirkju bæði Eiríksgötumegin og við Frakkastíg fyrir framan Tækniskólann. Í gildi frá morgni 3. apríl - 5. apríl í lok dags. Hallgrímskirkja og Tækniskólinn upplýst um málið.
Bílastæði báðum megin Frakkastígs frá Hallgrímskirkjutorgi að Hverfisgötu. Í gildi frá morgni 3. apríl - 5. apríl í lok dags. Íbúar og rekstraraðilar í nærumhverfinu upplýstir um málið.
Bílastæði við Skúlagötu 4 og Klapparstíg 3/v. Skúlagötu. Í gildi frá morgni föstudags 1. apríl - mánudags 4. apríl í lok dags. Íbúar og rekstraraðilar í nærumhverfinu upplýstir um málið.
Bílastæði við gatnamót Eiríksgötu og Mímisvegar. Notað sem sleppistæði í gildi 4. og 5. apríl til að forráðamenn barna í leikskólanum Grænuborg við Eiríksgötu hafi aðgengi að leikskólanum. Leyfishafi upplýsir leikskólann og forráðamenn um málið.