Loftgæði slæm í hægviðri og frosti

Mynd af umferð á Fríkirkjuvegi í þurru og köldu veðri.

Styrkur köfnunarefnisdíoxíðs (NO2) mælist hár í borginni í dag, 12. desember, samkvæmt mælingum í mælistöðinni við Grensásveg.  Klukkan 14.00 var klukkutímagildi köfnunarefnisdíoxíðs við Grensásveg 155,7 míkrógrömm á rúmmetra. Köfnunarefnisdíoxíðmengun kemur frá útblæstri bifreiða og er að jafnaði mest á morgnana og í eftirmiðdaginn þegar umferð er þung.

Hækkun á styrk köfnunarefnisdíoxíðs og brennisteinsvetnis í hægviðri og frosti

Gert er ráð fyrir áframhaldandi hægviðri og frosti í dag og umtalsverðar líkur á því að styrkur köfnunarefnisdíoxíðs fari yfir sólarhringsheilsuverndarmörk við Grensásveg.  Gert er ráð fyrir svipuðu veðri næstu daga og því mögulegt þetta ástand verði viðvarandi.

Styrkur brennisteinsvetnis fór einnig yfir sólarhringsheilsuverndarmörk í mælistöð Orku náttúrunnar í Norðlingaholti í dag.  Kl. 13.00 var klukkutímagildi brennisteinsvetnis 81,0 míkrógrömm á rúmmetra.  Brennisteinsvetni á uppruna sinn að rekja til jarðvarmavirkjanna í nágrenni Reykjavíkur og eru líkur á að mengun berist inn á höfuðborgarsvæðið þegar hæg austanátt ríkir og froststilla er.

Sólarhringsheilsuverndarmörkin fyrir köfnunarefnisdíoxíð eru 75 míkrógrömm á rúmmetra en leyfilegt klukkustundargildi er 200 míkrógrömm á rúmmetra.  Sólahringsheilsuverndarmörk fyrir brennisteinsvetni eru 50 míkrógrömm á rúmmetra miðað við hlaupandi meðaltal.

Áhersla á vistvæna samgöngumáta

Almenningur er hvattur til þess að draga úr notkun einkabílsins við þessar aðstæður, nýta sér frekar almenningssamgöngur, sameinast í bíla eða nota aðra vistvæna samgöngumáta. Þau sem eru viðkvæm fyrir í öndunarfærum og börn ættu að forðast útivist í lengri tíma og takmarka áreynslu í nágrenni stórra umferðagatna. Köfnunarefnisdíoxíð og brennisteinsvetni geta valdið ertingu í lungum og öndurvegi. 

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur fylgist náið með loftgæðum borgarinnar og sendir frá sér viðvaranir og leiðbeiningar ef ástæða þykir til. Hægt er að fylgjast með styrk köfnunarefnisdíoxíðs, brennisteinsvetni og annarra mengandi efna á www.loftgaedi.is.