Ljósverk Ólafs Elíassonar í Hallgrímskirkju

Dagur B. Eggertsson og Sigríður Hjálmarsdóttir.

Reykjavíkurborg skrifaði í dag undir samning við Hallgrímskirkju um að taka þátt í fjármögnun á ljósverki eftir Ólaf Elíasson sem verður bæði í neðri og efri turni kirkjunnar. Reykjavíkurborg greiðir Hallgrímskirkju samtals 20 milljónir króna í styrk sem deilist niður á þrjú ár.

Gera má ráð fyrir að verk Ólafs veki heimsathygli og dragi að sér innlenda og erlenda gesti. Leynd hvílir yfir útfærslunni en verkið mun setja lit sinn umhverfið með samspili lita og ljóss.  

Borgarstjóri sagði Hallgrímskirkju eitt helsta kennileiti borgarinnar en það væri bæði framsækið og djarft að listaverk yrði nú hluti af klukkuturninum. Það væri til marks um það mikla traust sem Ólafur Elíasson nyti en ætla megi að verkið myndi vekja jákvæða athygli, vekja fólk til umhugsunar og setja svip sinn á Skólavörðuholt og nágrenni.

Samfara innsetningu Ólafs Elíassonar hefur verið ákveðið að fara í framkvæmdir til að bæta aðgengi fatlaðs fólks að turninum. Frumkvæðið að því kemur frá Haraldi Þorleifssyni athafnamanni og forsprakka Römpum upp Reykjavík en hann og Öryrkjabandalagið ætla að vera kirkjunni innan handar í því verkefni.

Samningurinn við borgina um verk Ólafs Elíassonar er sá fyrsti af fleirum sem gerðir verða vegna uppsetningu verksins.