Á sunnudaginn, fyrsta sunnudag í aðventu, þann 27. nóvember kl. 16, verða ljósin á Oslóartrénu tendruð við hátíðlega athöfn á Austurvelli.
Lúðrasveit Reykjavíkur mun leika aðventu- og jólalög frá kl. 15.30 og tröllið Tufti verður á svæðinu og gleður gesti fyrir athöfnina. Sigríður Thorlacius og Valdimar flytja falleg jólalög ásamt hljómsveit og hefðinni samkvæmt munu jólasveinar stelast til byggða, syngja og skemmta viðstöddum. Kynnir er Katla Margrét Þorgeirsdóttir og verður dagskráin túlkuð á táknmáli. Órói Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra prýðir jólatréð.
Hinn 9 ára gamli norsk-íslenski Sander Snær Seim Sigurðsson mun aðstoða Dag B. Eggertsson borgarstjóra við að tendra ljósin á trénu. Þá mun borgarfulltrúi frá Osló, Hallstein Bjercke, afhenda borgarstjóra bókargjöf frá Oslóarborg og fá öll skólabókasöfn í Reykjavík einnig bækur að gjöf.
Öll velkomin!
Á síðu jólaborgarinnar má sjá nánari upplýsingar um jólaviðburði á vegum Reykjavíkurborgar.