Laugarnesskóli fær minningarverðlaun Arthurs Morthens

Verðlaunamyndin er eftir Tolla og sýnir bækur, tákn þekkingar og visku, í íslensku stórbrotnu og fjölbreyttu landslagi. Tolli segir að„svara við öllu mannlegu megi leita í náttúrunni“. Það var Sigríði Heiða Bragadóttir skólastjóri Laugarnesskóla ásamt samstarfsfólki sem veitti verðlaununum viðtöku.

Minningarverðlaun Arthurs Morthens í ár fékk Laugarnesskóli fyrir fjölbreytt skólastarf þar sem allir fá tækifæri.

Laugarnesskóli þar sem allir fá tækifæri

Í röksemdum dómnefndar kemur fram að skólinn fylgir stefnu um skóla án aðgreiningar og er hún samofin öllu daglegu skólastarfi í Laugarnesskóla. Áhersla er lögð á að veita öllum nemendum raunveruleg tækifæri til virkrar þátttöku í daglegu starfi. Mikill sveigjanleiki er í starfi með nemendur og áhersla er lögð á sérkennslu og snemmtæka íhlutun í 1. og 2. bekk til að styrkja nemendur bæði í námi og félagslega. Umhyggjustig skólans er hátt, hvort sem er gagnvart nemendum eða starfsfólki. Áhersla er lögð á samvinnu kennara og jafningjastuðning. Í mörg ár hefur verið starfandi lausnarteymi í skólanum þar sem starfsfólk vinnur saman að því að finna bestu lausnir hverju sinni. Laugaranesskóli er réttindaskóli UNICEF og er Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna hafður til hliðsjónar í öllu skólastarfi. Vorið 2021 var Laugarnesskóli fyrstur grunnskóla í borginni til að hljóta Regnbogavottun Reykjavíkurborgar sem hinseginvænn vinnustaður.

Verðlaunin veitt í síðasta sinn

Verðlaunin voru í ár veitt í fimmta og síðasta sinn en Arthur Morthens, sem lést árið 2016, helgaði starfsævi sína börnum sem áttu á brattann að sækja og var jafnframt talsmaður þeirra í réttindabaráttu sem oft á tíðum var erfið. Hann barðist fyrir því að öll börn hefðu sömu tækifæri til náms í skóla án aðgreiningar. Í ágúst 2016 samþykkti skóla- og frístundaráð að veita árlega, í fimm ár, einum grunnskóla í borginni viðurkenningu í minningu Arthurs Morthens.

Dómnefndin var skipuð fulltrúum frá Kennarafélagi Reykjavíkur, Barnaheillum, Félagi sérkennara á Íslandi og SAMFOK, ásamt tveimur fulltrúum frá skrifstofu skóla- og frístundasviðs.