Jólaævintýri í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum

Ljósaskipti við Tjörnina í Fjölskyldugarðinum og jólaljós gefa frá sér fjólubláa, gula og rauða birtu.

Aðventan í Ljósadal Fjölskyldu og húsdýragarðsins býður upp á eitthvað fyrir alla fjölskylduna. Í fallegu umhverfi geta gestir á öllum aldri átt skemmtilegar stundir og fundið jólaskapið í ljósadýrðinni.

Líkt og í fyrra hafa jólaljós verið sett upp um allan garðinn og töluvert bæst við að ljósum á milli ára svo það er ævintýri líkast að ganga um garðinn í rökkrinu, njóta jólatónlistar, heimsækja dýrin og jafnvel rekast á sjálfan jólaköttinn. Útigrillin verða opin fyrir þau sem vilja grilla úti í ljósadýrðinni og öllum er boðið í hringekjuna á kvöldopnunum á aðventunni.

Fjölskyldu- og húsdýragarðurinn er opinn til klukkan 20:00 fimmtudaga til sunnudaga á aðventunni eða frá 27.nóvember og til jóla. Hefðbundinn opnunartími er annars frá kl. 10 til 17. Það verður ókeypis inn fyrir 12 ára og yngri (í fylgd fullorðinna) á kvöldopnun (frá kl. 17 – 20 fimmtudaga til sunnudaga) og aðgangseyrir samkvæmt gjaldskrá fyrir 13 ára og eldri.

Ljósadalurinn er griðastaður fyrir fólk á öllum aldri til að heimsækja á aðventunni, slappa af og njóta ljósa og tónlistar. Gestir eru hvattir til að taka myndir af stemningunni og birta á samfélagsmiðlum undir myllumerkinu #ljosadalur22.