Innkalla núðlur frá Lucky me

Lucky Me Pancit Canton núðlur.

Filipino Store, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Instant Noodles Pancit Canton Chili frá Lucky Me!

Ástæða innköllunar er varnarefnið ethylene oxíð var notað við framleiðslu á innihaldsefnum sem síðan voru notuð við framleiðslu á vörunni.  Ethylene oxíð er ekki leyfilegt til notkunar við framleiðslu matvæla í Evrópu.

Ethylene oxíð hefur ekki bráða eiturvirkni en efnið hefur erfðaeituráhrif (getur skaðað erfðaefnið) og getur því haft skaðleg áhrif á heilsu.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

  • Vörumerki: Lucky Me!
  • Vöruheiti: Instant Noodles Pancit Canton Chili
  • Geymsluþol: Best fyrir  Dagsetning: 27/07/2022
  • Strikamerki: 4807770271229
  • Framleiðandi: Mobde Nissin Thailand Co. LTD.
  • Framleiðsluland: Tæland.
  • Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:
  • Filipino Store ehf., Langarima 23, 112 Reykjavík.

Um dreifingu sjá verslun Filipino Store, Langarima 23, og í vefverslun www.filipino.is.

Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig má skila henni gegn endurgreiðslu í verslun Filipino Store, Langarima 23.

Nánari upplýsingar um innköllunina veitir Gunnar Örn Eggertsson í síma 662 5369, store[hja]filipino.is.