Innkalla Black fungus frá Nam Meo

Varan sem um ræðir, Black Fungus frá Nam Meo.

Dai Phat Trading Inc ehf., hefur að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Black fungus frá Nam Meo því salmonella greindist í vörunni.

Salmonella er baktería sem getur valdið alvarlegum sýkingum í mönnum. Nánari upplýsingar um Salmonellu eru aðgengilegar á vefsíðu Matvælastofnunar: 

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

  • Vörumerki: Nam Meo
  • Vöruheiti: Black fungus
  • Geymsluþol: Best fyrir  Dagsetning: 10.10.2023
  • Strikamerki: 8717624001321
  • Nettómagn: 100 g
  • Framleiðsluland: Víetnam
  • Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Dai Phat Trading Inc ehf., Faxafeni 14, 108 Reykjavík.

Dai Phat Asian Supermarket, Faxafeni 14, 108 Reykjavík sér um dreifingu vörunnar.

Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig má skila henni gegn endurgreiðslu í verslun Dai Phat Asian Supermarket, Faxafeni 14, 108 Reykjavík.

Nánari upplýsingar má nálgast í verslun Dai Phat, Faxafeni 14 eða í síma 578 3889.