Íbúðir Búseta og Brynju við Hallgerðargötu

frá vinstri; Bjarni Þór Þórólfsson, Helga Egla Björnsdóttir, Jón Ögmundsson, Dagur B. Eggertsson, Guðbrandur Sigurðsson, Hlynur Örn Björgvinsson, Helgi Gunnarsson, Rúnar Ólafsson og Hildur Mósesdóttir.

Fyrsta skóflustunga var tekin við Hallgerðargötu 20 síðdegis í gær, 19. október, en þar byggir Búseti 42ja íbúða blokkir sem stefnt er að því að verði tilbúnar um mitt ár 2024. 

Verkefnið er samstarf milli  Búseta og Brynju, sem er leigufélag á vegum Öryrkjabandalagsins. Búseti byggir 37 íbúðir fyrir félagsmenn sína og fimm íbúðir fyrir leigufélag Brynju. Íbúðirnar eru frá tveggja herbergja til fimm herbergja eða frá 60 m² til rúmlega 140 m² að stærð. Um er að ræða tvískipta byggingu með bílakjallara, húsin verða steypt og klædd að utan. „Við hjá Búseta erum mjög spennt að byggja meira á þessu svæði sem er í nálægð við fjölmörg útivistar- og náttúrusvæði í Laugarneshverfi og Laugardal. Stíll húsanna rímar við útlit þeirra húsa sem fyrir eru og þau sem áformað er að byggja við Kirkjusand, samkvæmt gildandi skipulagi svæðisins, segir Bjarni Þór Þórólfsson framkvæmdastjóri Búseta. 

Það eru Gláma-Kím arkitektar sem hanna húsin við Hallgerðargötu 20 en þau samrýmast viðmiðum um algilda hönnun þar sem áhersla er á gott aðgengi fyrir alla. Búseti hefur gert samning við GG-verk um byggingu húsanna. Um er að ræða lyftuhús með aðgengi að svölum og sérafnotareitum. Bílastæði í sameiginlegum bílakjallara fylgja flestum íbúðanna og þar eru möguleikar á tengingum fyrir rafhleðslu bifreiða.