Íbúafundi á Kjalarnesi frestað vegna veðurs
Íbúafundi sem halda átti á Kjalarnesi í kvöld hefur verið frestað vegna veðurs.
Íbúafundurinn sem átti að fara fram í Fólkvangi klukkan 20:00 í kvöld hefur verið frestað sökum veðurs að beiðni Almannavarna. Mjög djúp lægð gengur nú yfir landið og henni fylgir hvassviðri og él.
Fundurinn verður haldinn 30. mars næstkomandi í Fólkvangi.