Hverfisskipulag hafið fyrir Laugarnes-, Langholts- og Vogahverfi
Vefsvæði vegna vinnu við hverfisskipulag fyrir Laugarnes-, Langholts- og Vogahverfi hefur verið opnað, en saman mynda þessi hverfi borgarhluta fjögur. Vefsíðan er fyrsti kafli viðamikils samráðs Reykjavíkurborgar með íbúum hverfanna sem umlykja Laugardalinn.
Áhersluatriði íbúa
Við hverfisskipulagsvinnu í þessum borgarhluta er meðal annars stefnt að því að koma á fót hópi eldhuga sem hafa brennandi áhuga á umhverfi sínu og vilja hafa áhrif á þróun hverfanna. Eldhugahópnum er ætlað að vera ráðgefandi við þróun hverfisskipulags á tímabilinu með því að rýna hugmyndir og vinnutillögur á ólíkum stigum skipulagsferlisins og koma á framfæri áhersluatriðum íbúa. Auk þess er markmiðið að eldhugahópur hvetji aðra íbúa til þátttöku í samráðsferli hverfisskipulagsins.
Rúmt svigrúm
Innan forsenda Aðalskipulags Reykjavíkur 2040 hafa íbúar og skipulagssérfræðingar á vegum borgarinnar rúmt svigrúm til að leggja fram hugmyndir og pælingar um hvernig hægt er að gera þessi góðu hverfi enn betri með nýju hverfisskipulagi.
Efnið sem er kynnt á vefsíðunni er statt á ýmsum stigum. Sumar hugmyndir eru komnar í farveg í aðalskipulagi eða deiliskipulagi, einhverjar eru í skoðun og enn aðrar eru nefndar sem hugsanlegir möguleikar. Á þann hátt er gott að skapa umræður og fá viðbrögð frá borgarbúum og hagsmunaaðilum.
Ákall um þátttöku
Samráðið framundan í Laugardal er bæði fjölbreytt og spennandi. Það er sett upp til þess að raddir og skoðanir sem flestra fái að heyrast. Leitað er eftir skoðunum grunnskólabarna og ungmenna, ungra foreldra og einstaklinga, sambúðaraðila og eldri borgara og annarra sem skipulagið snertir.
Verkefnið Skapandi samráð er mikilvægt skref í fyrstu umferð, en það gengur út á að fá börn í grunnskólum hverfanna til samstarfs. Börnin munu til dæmis smíða módel af hverfunum, fræðast og ræða þróun sinna hverfa. Krakkarnir fá líka tækifæri til að koma skoðunum sínum um aðgerðir og úrbætur á framfæri með sérstöku miðakerfi sem á að tryggja að allar skoðanir komi fram óháð getu til að tjá sig munnlega. Sambærileg vinna hefur farið fram í á þriðja tug grunnskóla í Reykjavík.
UNICEF styður lýðræðisstarf með börnum
Samráðið er gott lýðræðisstarf með börnum og hafa fulltrúar UNICEF, sem stýra verkefninu „Barnvæn sveitarfélög“, lýst yfir áhuga á að taka þátt í því í skólunum í nágrenni Laugardals, sem lið í því að efla mannréttindi barna.
Reynslan frá samráðinu í Breiðholti, Háaleiti-Bústöðum og Hlíðum sýnir að hlustað er sjónarmið íbúa, enda búa þeir yfir dýrmætri þekkingu. Starfsfólk hverfisskipulagsins hlakkar til að eiga uppbyggilegt og gott samtal við alla um framtíð hverfanna í Laugardal.