Hugmyndaríkir Reykvíkingar

Hetjan úr hverfinu stillir sér upp fyrir framan Hallgrímskirkju.

Íbúar Reykjavíkur hafa nú þegar sent inn yfir 1100 hugmyndir þegar enn eru tvær vikur til stefnu af hugmyndasöfnun Hverfið mitt. Fjöldi hugmynda nálgast því óðfluga heildarfjölda innsendra hugmynda árið 2021, sem var 1316 hugmyndir.

Grafarvogur leiðir með 200 innsendar hugmyndir, sem eru fleiri hugmyndir en voru sendar inn í hverfinu síðast. Næst kemur Laugardalur en þar hafa verið sendar inn 161 hugmynd. Fast á hæla koma svo Hlíðarnar með 142 hugmyndir og Árbærinn með 131 innsendar hugmyndir. Öll þessi hverfi hafa nú þegar sent inn fleiri hugmyndir en bárust Hverfinu mínu árið 2021.

Nokkur hverfi Reykjavíkur hafa farið rólegra af stað í hugmyndasöfnuninni og eru fjarri þeim fjölda hugmynda sem send voru inn í hverfunum síðast. Þar á meðal má nefna, Miðborg, Breiðholt, Háaleiti og Bústaði og Kjalarnes. Íbúar þessara hverfa eru hvattir til að láta ekki sitt eftir liggja og senda inn sínar hugmyndir hvernig gera megi hverfið þeirra enn betra.

Hver verður Hetjan í þínu hverfi?

Eiríkur Búi Halldórsson, verkefnastjóri, segir skemmtilegt að sjá nokkur hverfi nú þegar búin að senda inn fleiri hugmyndir en í allri hugmyndasöfnuninni í fyrra. „Þó eru nokkur hverfi sem voru öflug í fyrra sem hafa farið hægar af stað í ár, til að mynda Breiðholtið og Miðborgin,“ segir Eiríkur Búi. „En það eru enn tvær vikur til stefnu svo íbúar þessara hverfa hafa enn tíma til að senda inn sínar frábæru hugmyndir og gera tilkall til þess að verða Hetjan úr Hverfinu“. Síðan er auðvitað líka hægt að fara á síðuna og skoða hugmyndir sem búið er að senda inn og velja sínar uppáhalds.“

Ásamt því að senda inn hugmyndir er hægt að fara á Hverfidmitt.is og líka við sínar uppáhalds hugmyndir og setja rök með eða á móti hugmyndum sem er þegar búið að senda inn. Það verða 25 hugmyndir í kosningu í hverju hverfi á næsta ári, 15 vinsælustu hugmyndirnar (af samþykktum hugmyndum) og 10 hugmyndir sem íbúaráð hverfisins velur.