Hlutfall negldra hjólbarða 40% í Reykjavík í mars
Hlutfall negldra dekkja var talið í Reykjavík miðvikudaginn 9. mars. Hlutfallið skiptist þannig að 40% ökutækja var á negldum dekkjum og 60% var á öðrum dekkjum.
Hlutfall negldra dekkja er örlítið lægra en á sama tíma í fyrra þegar 41,4% ökutækja var á negldum dekkjum. Fyrir tveimur árum var hlutfallið 40,9% og því hefur það lækkað örlítið síðan þá en betur má ef duga skal.
Fram kom í fyrirlestri um um áhrif nagladekkja á loftgæði og gatnaslit, að nagladekk er ráðandi þáttur í svifryksmengun á höfuðborgarsvæðinu. „Bíll á nöglum mengar allt að 40 sinnum meira en bíll sem ekki er á nöglum," sagði Þorsteinn Jóhannsson sérfræðingur hjá Umhverfisstofnun og „Það er sinnum, ekki 20-40 prósent meira heldur 2000 prósent allavega."
Nagladekk eða ekki
Staðreyndin er að nagladekk auka kostnað á viðhaldi gatna í Reykjavík með því að slíta malbikið margfalt hraðar en önnur dekk, þau auka eldsneytiskostnað bifreiða, þau valda óþarfa hávaða og draga úr loftgæðum með mengun. Af þeim sökum er mikilvægt að draga úr hlutfalli þeirra. Dýpt mynsturs í hjólbörðum hefur til að mynda áhrif á hversu gott grip þeirra er. Aðalatriðið er að vera á góðum vetrardekkjum og aka eftir aðstæðum og fara varlega.
Hlutfall negldra dekkja verður næst kannað 20. apríl en ekki er leyfilegt að aka á nöglum eftir 15. apríl ár hvert.