Hjólatalning í Fossvogsdal

Hjólaborgin Samgöngur

Hjólatalningabúnaður við hjólastíg í Fossvogsdal.

Reykjavíkurborg telur umferð hjólandi fólks á mörgum stöðum í borginni. Í dag var færanlegur hjólateljari settur upp á hjólastíg í Fossvogsdal, nánar tiltekið við Hörgsland. Athygli hjólafólks er vakin á því að notuð er gúmmíslanga til að telja reiðhjólin. Gúmmíslangan liggur þvert yfir stíginn og þétt upp við hann og á því að vera hættulaust að hjóla yfir slönguna.

Áður hefur komið fyrir að vegfarendur hafi hreyft til talningaslöngur þannig að ekki hefur verið hægt að safna gögnum um ferðir hjólreiðafólks.

Talningatímabilið á þessum stað er frá deginum í dag til loka maí. Meðfylgjandi er mynd af talningarbúnaðinum og staðsetningu hans.