Hinsegin félagsmiðstöð fyrir 10-12 ára

Vagn Hinsegin félagsmiðstöðvar í Gleðigöngu 2018.

Hinsegin félagsstarf fyrir 10-12 ára hefst Í dag, fimmtudaginn 28. apríl, en mörg ungmenni hafa beðið spennt eftir því.

Það verða vikulegar opnanir í anda 10-12 ára starfs félagsmiðstöðva með hinsegin ívafi og verður lögð áhersla á hópefli, fræðslu, sjálfsstyrkingu og skemmtun.

Starfið er hugsað fyrir öll hinsegin börn og börn sem tengja við hinseginleika eða hinsegin málefni á einn eða annan hátt. Opnanirnar verða í húsnæði Samtaka ‘78, á Suðurgötu 3, 101 Reykjavík og eru alla fimmtudaga frá 16:00-18:00, engin skráning er þörf og öll eru velkomin!



Opnanir fram að sumarfríi verða sem hér segir:

  • Fimmtudagurinn 28.apríl
  • Fimmtudagurinn 5. maí
  • Fimmtudagurinn 12. maí
  • Fimmtudagurinn 19. maí
  • Fimmtudagurinn 26. maí
  • Fimmtudagurinn 2. júní

Frekari upplýsingar um starfið veitir Hrefna Þórarinsdóttir forstöðukona Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar í hrefna.thorarinsdottir@rvkfri.is