Heilbrigðiseftirlit - innköllun á Úrvals hákarli

Úrvals hákarl

Ó. Johnson & Kaaber, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Úrvals hákarl.

Heilbrigðiseftirlit: Innköllun á Úrvals hákarli

Ástæða innköllunar er sú að framleiðandi vörunnar er ekki með starfsleyfi fyrir framleiðslunni. Um óleyfilega framleiðslu er að ræða og ekki er hægt að tryggja matvælaöryggi. 

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

 Vöruheiti: Úrvals hákarl

Geymsluþol: Innköllunin nær til allra lota/best fyrir dagsetninga: 13.12.2022 og 1.1.2023

Strikamerki: 5694230087303

Nettómagn: 100 g

Geymsluskilyrði: Kælivara

Ábyrgðaraðili: Ó. Johnson & Kaaber

Framleiðsluland: Ísland

Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:

Ó. Johnson & Kaaber, Tunguhálsi 1, 110 Reykjavík.

Dreifing:

Hraðbúðin Hellissandi, Hagkaup, Kostur, BL ehf., Kaupfélag V-Húnvetninga, 10-11, Extra, Plúsmarkaðurinn og Krónan.

Leiðbeiningar til neytenda:

Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni hjá Ó. Johnson & Kaaber ehf.

Nánari upplýsingar um innköllun:

Nánari upplýsingar veitir Ó. Johnson & Kaaber ehf. í síma 535 4000 eða í gegnum netfangið ojk[hjá]ojk.is.