Grafarvogsbúar tróna á toppnum með flestar hugmyndir
1489 hugmyndir eru nú komnar inn í hugmyndasöfnuninni Hverfið mitt og aðeins þrír dagar eftir, en söfnuninni lýkur á miðnætti 27. október.
Hátt í átta þúsund einstaklingar hafa tekið beinan þátt með því að senda inn hugmynd og/eða velja sínar uppáhaldshugmyndir. Hugmyndasöfnun fyrir Hverfið mitt er nú haldin í tíunda sinn og hafa Reykvíkingar slegið met í fjölda innsendra hugmynda.
Metfjöldi hugmynda samkvæmt nýjustu tölum
Grafarvogurinn trónir á toppnum með flestar hugmyndir í hugmyndasöfnuninni eða 235 hugmyndir. Fast á hæla Grafarvogs kemur Laugardalur með 205 hugmyndir og í þriðja sæti eru Hlíðarnar með 182 hugmyndir. Á meðfylgjandi mynd má sjá fjölda hugmynda í hverju hverfi – sem hafa mörg þegar klifið 100 hugmynda múrinn.
Taktu þátt og sendu inn hugmynd
Ert þú með hugmynd? Ef svo er þá er tækifærið til að koma henni á framfæri núna og senda hana inn í hugmyndasöfnunina. Fáðu nágrannana í lið með þér og láttu þá vita af hugmyndinni. Inni á síðunni hverfidmitt.is er hægt að velja sínar uppáhaldshugmyndir, þ.e. líka við hugmyndir sem fá þá enn meira vægi. Kosið verður um 25 hugmyndir í hverju hverfi á næsta ári, 15 vinsælustu hugmyndirnar (af samþykktum hugmyndum) og 10 hugmyndir sem íbúaráð hverfisins velur.
Komum hugmyndum á framfæri, nýtum tækifærið og bætum hverfin í borginni. Það hefur sýnt sig að þegar borgarbúar fá að hafa áhrif á nærumhverfi sitt verða hverfin betri.
Sendu inn þína hugmynd á Hverfidmitt.is.