Fyrstu skref að uppbyggingu þjóðarhallar

Framkvæmdir Íþróttir og útivist

Íþróttamannvirki í Laugardal séð úr lofti

Uppbyggingu nýrrar þjóðarhallar fyrir innanhússíþróttir hefur verið formlega ýtt úr vör með skipun sameiginlegs starfshóps ríkis og borgar sem er falið að fylgja eftir tímasettri framkvæmdaáætlun. Á næstu vikum verður skipað í framkvæmdanefnd og ráðgjafaráð.

Í byrjun maí s.l. undirrituðu Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Ásmundur Einar Daðason mennta- og barnamálaráðherra og Dagur B. Eggertsson borgarstjóri viljayfirlýsingu um byggingu nýrrar þjóðarhallar fyrir innanhússíþróttir í Laugardal sem bæði uppfyllir kröfur fyrir alþjóðlegar keppnir í innanhússiþróttagreinum og þarfir Reykjavíkurborgar fyrir aðstöðu fyrir skóla og íþróttafélög.

Borgarráð staðfesti í dag erindisbréf þar sem ríkið og Reykjavíkurborg skipa sameiginlega framkvæmdanefnd og ráðgjafaráð um uppbyggingu þjóðarhallarinnar. Jafnframt hefur verið skipaður starfshópur sem falið er að vera fulltrúar eigenda vegna uppbyggingar mannvirkisins.

Starfshópinn skipa:

  • Arnar Þór Sævarsson, fulltrúi mennta- og barnamálaráðherra
  • Huginn Freyr Þorsteinsson, fulltrúi forsætisráðherra
  • Steinunn Sigvaldadóttir, fulltrúi fjármálaráðherra
  • Ómar Einarsson fulltrúi Reykjavíkurborgar
  • Halldóra Káradóttir fulltrúi Reykjavíkurborgar
  • Þórhildur Lilja Ólafsdóttir fulltrúi Reykjavíkurborgar

Starfsmaður nefndarinnar er Örvar Ólafsson sérfræðingur í mennta- og barnamálaráðuneyti.

Fagleg vinna vegna allra þátta uppbyggingar s.s. hönnunar, útboða, tæknilegrar útfærslu, rekstrarforms og fjármögnunar er leidd af framkvæmdanefnd sem verður skipuð tveimur fulltrúum ríkisins og tveimur fulltrúum Reykjavíkurborgar.

Starfshópi til ráðgjafar vegna uppbyggingarinnar verður nýtt ráðgjafaráð undir formennsku fulltrúa Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem verður einnig skipað fulltrúum frá Íþróttabandalagi Reykjavíkur, skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar, knattspyrnufélaginu Þrótti og íþróttafélaginu Ármanni.