Fyrsta skólfustungan að nýjum íbúðum fyrir unga fólkið í borginni

Framkvæmdir Hverfisskipulag

Fyrsta skóflustungan að nýju hagkvæmu húsnæði fyrir ungt fólk. F.v. Júlíus Þór Júlíusson framkvæmdastjóri Hoffell ehf , Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri, Hilmar S. Sigurðsson framkvæmdastjóri Hverfið Gufunes ehf og Jóhann Einar Jónsson framkvæmdastjóri Teiknistofu Arkitekta ehf .

Hverfið Gufunes reisir hagkvæmt húsnæði fyrir ungt fólk og fyrstu kaupendur í Gufunesi.

Dag­ur B. Eggerts­son borg­ar­stjóri og full­trú­ar byggingafélagins Hverfið Gufunes ehf  tóku í dag skóflu­stungu að nýju íbúðar­húsnæði við Jöfursbás 9 í Gufunesi.   Fram­kvæmd­irn­ar marka upp­hafið að bygg­ingu á 62 nýjum vistvænum íbúðum í Gufu­nesi.    Á svæðinu verða þrjú fjölbýlishús á þremur hæðum og á miðju landinu verður útvistar- og leiksvæði fyrir börnin.   

Í fyrsta áfanga verða byggðar 14 íbúðir og næstu tveimur áföngum verða byggðar 48 íbúðir.  Gert er ráð fyr­ir að fyrstu íbúðirnar verði af­hent­ar í árs­lok 2022 og verkefnið taki 3 ár í heild.

Haft er eft­ir Hilmari S Sigurðssyni , fram­kvæmda­stjóra Hverfið Gufunes ehf. að hér er um að ræða hagkvæmt og vandað húsnæði fyrir fyrstu kaupendur á íbúðamarkaði.  „Gufunesið býður upp á mikla nálægð við nátturuna og sjóinn, ásamt því að vera í tengsl­um við skap­andi iðnað, frum­kvöðla­starf­semi og menn­ingu“.

Hverfið Gufunes ehf. er félag sem stofnað var utan um verkefnið.  Byggingarverktakinn Hoffell ehf mun annast allar framkvæmdir við byggingarnar og verða húsin byggð úr einingum að skandinavískri fyrirmynd, en Hoffell er í samstarfi við öflugan framleiðanda byggingarkerfa á norðurlöndum.  Teiknistofa Arkitekta hannar verkefnið ásamt verkfræðistofunni Eflu.

Vefsíða              https://www.hverfidgufunes.is

Facebook           https://www.facebook.com/hverfidgufunes