Framboð til borgarstjórnarkosninga 2022

Ráðhús Reykjavíkur

Framboðsfrestur til borgarstjórnarkosninga 14. maí 2022 rennur út föstudaginn 8. apríl kl. 12 á hádegi.

Yfirkjörstjórn Reykjavíkur tekur á móti framboðslistum miðvikudaginn 6. apríl kl. 11-12 og föstudaginn 8. apríl kl. 11-12 í fundarherbergi borgarráðs, Ráðhúsi Reykjavíkur.

Á framboðslista skulu vera nöfn 23 frambjóðenda að lágmarki og 46 að hámarki. Hverjum framboðslista skal fylgja skrifleg yfirlýsing allra þeirra sem á listanum eru um að þau hafi leyft að setja nöfn sín á listann, undirrituð eigin hendi eða með fullgildri rafrænni undirskrift.

Framboðslista skal einnig fylgja skrifleg yfirlýsing kjósenda í kjördæminu um stuðning við listann sem skal undirrituð eigin hendi á eyðublöðum með tölusettum blaðsíðum. Tilgreina skal fullt nafn meðmælanda, kennitölu hans og lögheimili. Fjöldi meðmælenda skal vera 160 að lágmarki og 320 að hámarki. Enginn kjósandi getur mælt með fleiri en einum framboðslista. Frambjóðendur á lista geta ekki verið meðmælendur hans og fulltrúar í kjörstjórnum geta ekki verið meðmælendur framboðslista.

Gæta skal þess um öll framboð að tilgreina skýrlega nafn frambjóðanda, kennitölu hans, stöðu eða starfsheiti og lögheimili. Skulu nöfn frambjóðenda rituð á framboðslista að lágmarki með einu eiginnafni og kenninafni eins og þau birtast í þjóðskrá. Mælst er til að framboðslistum verði einnig skilað á rafrænu formi og meðmælendalistar skráðir rafrænt á þar til gert vefsvæði á: https://island.is/medmaelendalistar-skraning-fyrir-frambod.

Loks skal fylgja framboðslista tilkynning frá þeim stjórnmálasamtökum sem bjóða fram listann um það hverjir tveir menn séu umboðsmenn listans ásamt tengiliðaupplýsingum þeirra.

Tilkynning um framboð og yfirlýsing frambjóðenda skal skilað til yfirkjörstjórnar í frumriti ef þær eru undirritaðar eigin hendi, en rafrænt skjal með fullgildri rafrænni undirskrift skal sent sem viðhengi í tölvupósti á netfangið kosningar@reykjavik.is. Æskilegt er að sem flestar rafrænar undirskriftir séu á sama skjalinu.

Yfirlýsingu kjósenda um stuðning við framboðslista skal skilað til yfirkjórstjórnar í frumriti undirrituð eigin hendi.

Eyðublöð fyrir allt framangreint eru aðgengileg á www.reykjavik.is/kosningar.

Að öðru leyti er vísað til ákvæða kosningalaga nr. 112/2021 með síðari breytingum og reglugerðar dómsmálaráðuneytis nr. 330/2022 um framboð og meðmæli við sveitarstjórnarkosningar.

Meðan kosning fer fram, laugardaginn 14. maí nk., verður aðsetur yfirkjörstjórnar Reykjavíkur í Ráðhúsi Reykjavíkur. Að kjörfundi loknum fer talning atkvæða fram í Laugardalshöll og mun aðsetur yfirkjörstjórnar flytjast þangað. Talning er öllum opin meðan húsrúm leyfir og verður streymt frá henni á vef Reykjavíkurborgar.

Nánari upplýsingar má nálgast á www.reykjavik.is/kosningar eða með því að hafa samband við skrifstofu borgarstjórnar í s. 411-4706 eða með tölvupósti á kosningar@reykjavik.is.