Framadagar 2022
Reykjavíkurborg tekur þátt í Framadögum sem haldnir verða í Háskólanum í Reykjavík föstudaginn 11. mars nk.
Framadagar eru árlegur viðburður þar sem fyrirtæki og stofnanir koma saman til að efla ungt fólk og sýna þeim hvað íslenskur vinnumarkaður býður upp á. Framadagar hafa verið haldnir í yfir tuttugu ár þar sem ungmenni koma saman og kynna sér fyrirtæki og efla tengslanet.
Reykjavíkurborg, sem er stærsti vinnustaður landsins, tekur þátt líkt og fyrri ár og verður með kynningabás.Ýmis fríðindi fylgja því að starfa hjá Reykjavíkurborg og það er lögð mikil áhersla á að allir hafi tækifæri á því að efla sig í starfi. Allt starfsfólk fær einnig sund- og menningarkort ásamt því að eiga rétt á líkamsræktarstyrk. Einnig stendur öllu starfsfólki til boða að fá samgöngusamning.
Öllum er velkomið að kíkja við á bás Reykjavíkurborgar á 2. hæð í HR milli klukkan 10 og 14 n.k. föstudag og hitta starfsfólk borgarinnar ásamt því að sjá fjölmarga bása frá fjölbreyttum fyrirtækjum og stofnunum.
Hægt er að senda fyrirspurn á netfangið mannaudur@reykjavik.is ef einhverjar spurningar vakna.