Fjölbreytt byggð í Nýja Skerjafirði

Framkvæmdir Skipulagsmál

Fjölbreytt byggð mun rísa í Nýja Skerjafirði

Borgarráð hefur samþykkt að úthluta lóð og byggingarrétti til Félagsstofnunar stúdenta fyrir 110 námsmannaíbúðir í Nýja Skerjafirði. Þá fékk Bjarg íbúðafélag samþykki fyrir 95 nýjum íbúðum í sama hverfi.

Nokkur mál er varða fyrsta áfanga í Nýja Skerjafirði voru tekin fyrir á fundi borgarráðs á fimmtudaginn. Samþykktar voru heimildir til að bjóða til sölu byggingarrétt fyrir íbúðarhúsnæði, verslunar- og þjónustulóð með bílastæðahúsi fyrir hverfið og svo lóð fyrir verslunarhúsnæði. 

Óskað var eftir að borgarráð samþykkti að úthluta lóð og byggingarrétti fyrir 110 námsmannaíbúðir á 3-5 hæðum á lóð við Otursnes 62. Var þetta samþykkt og er heimilað byggingarmagn 8.800 m2 ofanjarðar og 630 m2 kjallari neðanjarðar. 

Þá var samþykkt að úthluta lóð og byggingarrétti fyrir 95 íbúðir á 2-5 hæðum í fjórum húsum á lóð við Reginsnes 10. Heimilað byggingarmagn er 7100 m2 ofanjarðar og 540 m2 kjallari neðanjarðar.