Evrópsku kvikmyndaverðlaunin 2022 í Hörpu

Undirbúningur fyrir Evrópsku Kvikmyndaverðlaunin eru í hámarki í Hörpu

Evrópsku kvikmyndaverðlaunin verða afhent í Hörpu á morgun og hefur undirbúningur staðið yfir undanfarið ár.

Um viðamikið samstarfsverkefni er að ræða milli íslenska ríkisins, Reykjavíkurborgar og Evrópsku kvikmyndaakademíunnar.

Evrópsku kvikmyndaverðlaunin voru fyrst veitt árið 1988 í Vestur - Berlín en megintilgangur þeirra er að styðja við og vekja athygli á evrópskri kvikmyndagerð. Hátíðin er haldin annað hvert ár í Berlín en þess á milli til skiptis í öðrum borgum Evrópu og í ár er hún haldin í Reykjavík.

Um 700 gestir frá 43 löndum verða viðstaddir verðlaunaafhendinguna og þeirra á meðal eru franska leikkonan Léa Seydoux og króatíski leikarinn Zlatko Buric. Þá munu leikarahjónin Nikolaj og Nukâka Coster-Waldau afhenda verðlaun á hátíðinni. Um 100 blaðamenn verða einnig viðstaddir.

Aðalkynnar hátíðarinnar eru Ilmur Kristjánsdóttir leikkona og Hugleikur Dagsson listamaður. Tónlistarmaðurinn Unnsteinn Manuel er listrænn stjórnandi hátíðarinnar.

1.800 gistinætur eru bókaðar í tengslum við viðburðinn sem fylgst er með um alla Evrópu. Starfsfólk Hörpu sér til þess að allt gangi smurt fyrir sig auk þess eru 75 starfsmenn frá kvikmyndaakademíunni eru komnir til landsins til að skipuleggja viðburðinn.

Evrópsku kvikmyndaverðlaunin verða í beinni útsendingu á RÚV.