Elfa Björk Jónsdóttir listamaður Listar án landamæra
Elfa Björk Jónsdóttir var útnefnd listakona hátíðarinnar List án Landamæra við hátíðlega athöfn í gær. Frá stofnun Listar án landamæra hefur hátíðin valið einn framúrskarandi listamann úr röðum fatlaðra listamanna sem listamann hátíðarinnar.
List án landamæra hélt hátíðlega athöfn í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur í gær þar sem borgarstjóri flutti stutta ræðu og afhenti Elfu Björku blómvönd í tilefni útnefningarinnar.
Elfa Björk Jónsdóttir er hæfileikarík listakona og má segja að myndheimur hennar byggist á afstrakt grunni og skapast oft skemmtilegt samspil formræmu og fígúratífs þegar hún sækir sér fígúratífar fyrirmyndir ýmist úr umhverfinu, náttúrulífs bókum eða úr listasögunni. Þegar hún skapar listaverk innblásin af myndum í bókum eða öðrum listaverkum að þá má segja að hún færi myndefnið yfir í sitt sterka einkennandi form í línum litum og formgerð sem birtist að hluta í uppskiptingu myndflatarins. Elfa Björk er ákaflega vinnusöm og með sterkan hreinan og ákveðinn stíl.
Elfa Björk fékk fyrst tilsögn í myndlist þegar Alda Ármanna Sveinsdóttir, myndlistarkona kenndi myndlist í Skálatúnsheimilinu í byrjun árs 1972 en þá var Elfa Björk aðeins 10 ára. Síðan þá hefur Elfa Björk fengið tilsögn í myndlist á námskeiðum hjá Öldu Ármönnu í Reykjavík, hjá Margréti Long, myndlistarkennara á Selfossi og verið á glerlistanámskeiði hjá Dagnýju Magnúsdóttur í glerlistasmiðjunni Hendur í Höfn í Þorlákshöfn. Árið 2019 flutti Elfa Björk til Sólheima í Grímsnesi og hefur stundað þar daglega markvissa listsköpun af kappi á öllum vinnustofum Sólheima. Mest hefur hún þó unnið myndlist í listasmiðjunni með leiðsögn Ólafs Má Guðmundssonar myndlistarkennara og fagstjóra listasmiðju Sólheima.