Einn af hverjum tíu starfsmönnum í skóla- og frístundastarfi frá vinnu vegna covid

Covid-19 Skóli og frístund

Nemendur og kennari í skólastofu.

Nær 600 starfsmenn í skóla- og frístundastarfinu í borginni eru frá vinnu vegna covid-19 og jafngildir það 10,2% starfsmanna

Nær 600 starfsmenn í leikskólum borgarinnar, grunnskólum, frístundaheimilum, félagsmiðstöðvum og skólahljómsveitum voru frá vinnu mánudaginn 10. janúar vegna einangrunar eða sóttkvíar af völdum Covid-19. Þetta jafngildir 10,2% starfsmanna og er hlutfallið nær þremur prósentustigum hærra en það var mánudaginn 3. janúar en þá var hlutfallið 7,3%.

 Leikskóli

  • Í leikskólum eru 342 starfsmenn í einangrun eða sóttkví sem jafngildir 14,3% af starfsmanna. Það er hækkun úr 8,3% sem var hlutfallið fyrir viku.
  • Þá voru í gær 1.554 börn skráð fjarverandi ýmist vegna veikinda, sóttkvíar eða annarra forfalla í borgarreknum leikskólum sem er 29,2% leikskólabarna.

Grunnskóli

  • Í grunnskólum eru 216 starfsmenn fjarverandi í beinum tengslum við Covid-19. Það gerir 7,4% starfsmanna og er hækkun úr 6,4% fyrir viku.
  • Rúmlega 2.900 börn voru fjarverandi í borgarreknum grunnskólum ýmist vegna veikinda, sóttkvíar eða annarra forfalla eða 20% nemenda.

 Frístundastarf

  • Í frístundaheimilum og sértækum félagsmiðstöðvum eru 24 starfsmenn í einangrun eða sóttkví eða 7,2% starfsmanna og er það aukning frá 6,3% fyrir viku.
  • Tæplega 400 börn voru fjarverandi ýmist vegna veikinda, sóttkvíar eða annarra forfalla í frístundaheimilum og sértækum félagsmiðstöðvum sem gerir er 23,8% barna.
  • Í félagsmiðstöðvum eru 15 starfsmenn í einangrun eða sóttkví sem jafngildir 8,9% starfsmanna og er það fækkun frá 10,6% fyrir viku.