Diljá Ragnarsdóttir mun aðstoða borgarstjóra

Stjórnsýsla

Diljá Ragnarsdóttir
Diljá Ragnarsdóttir

Diljá Ragnarsdóttir, lögfræðingur, hefur verið ráðin aðstoðarmaður Dags B. Eggertssonar borgarstjóra. Hún útskrifaðist með BA gráðu í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík vorið 2017 og lauk svo mastersnámi þaðan árið 2021.

Diljá starfaði hjá LMG lögmönnum frá 2019 til 2022. Hún var kosningastjóri Samfylkingarinnar í Reykjavík í síðustu sveitarstjórnarkosningum. Um mitt ár 2022 hóf hún störf hjá Marel.

Diljá hefur störf á skrifstofu borgarstjóra og borgarritara í Ráðhúsi Reykjavíkur í janúar 2023.