Danól, að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Hrökkbrauð - Jurtir & sjávarsalt og Crunchy Crackers - Herbs & Sea Salt frá Sigdal Bakeri.
Ástæða innköllunar:
Varnarefnið ethylene oxíð var notað við framleiðslu á jurtablöndu (blóðberg/óreganó) sem síðan var notuð við framleiðslu á vörunum. Ethylene oxíð er ekki leyfilegt til notkunar við framleiðslu matvæla í Evrópu.
Hver er hættan?
Ethylene oxíð hefur ekki bráða eiturvirkni en efnið hefur erfðaeituráhrif (getur skaðað erfðaefnið) og getur því haft skaðleg áhrif á heilsu.
Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:
Vörumerki: Sigdal Bakeri
Vöruheiti: Hrökkbrauð - Jurtir & sjávarsalt
Geymsluþol: Best fyrir Dagsetningar: Milli 06.01.2022 og 18.02.2022 og milli 26.03.2022 og 18.07.2022
Strikamerki: 7071848004492
Framleiðandi: Bakeverket AS
Framleiðsluland: Noregur
Vörumerki: Sigdal Bakeri
Vöruheiti: Crunchy Crackers - Herbs & Sea Salt
Geymsluþol: Best fyrir Dagsetningar: Milli 06.01.2022 og 18.02.2022 og milli 26.03.2022 og 18.07.2022
Strikamerki: 7071848025077
Framleiðandi: Bakeverket AS
Framleiðsluland: Noregur
Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:
Danól, Fosshálsi 25, 110 Reykjavík.
Dreifing:
Verslanir um land allt.
Leiðbeiningar til neytenda:
Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreind matvæli eru beðnir um að neyta þeirra ekki og farga en einnig er hægt að skila þeim í þeirri verslun sem þau voru keypt í gegn endurgreiðslu eða skiptum á samskonar vöru.
Nánari upplýsingar um innköllun:
Danól, Fosshálsi 25, 110 Reykjavík, danol[hja]danol.is, 595 8000.