Reykjavíkurborg mun, í samstarfi við Faxaflóahafnir, útvega íslenska ríkinu um 30 þúsund fermetra lóð fyrir löggæslu- og viðbragðsaðila, svokallaða Björgunarmiðstöð, milli Kleppssvæðisins og Holtagarða. Í staðinn fær borgin lóð, áþekka að stærð, við Borgarspítala í Fossvogi.
Borgarráð samþykkti í dag heimild til að kalla eftir úthlutun frá Faxaflóahöfnum, á um 30 þúsund fermetra lóð sem liggur á milli Kleppssvæðisins og Holtagarða. Þá samþykkti borgarráð að gerður yrði makaskiptasamningur við Ríkissjóð Íslands, þar sem Reykjavíkurborg framselur lóðarleiguréttindi að framangreindri lóð en fær í staðinn um 30 þúsund fermetra lóð við Borgarspítalann.
Sameiginlegt húsnæði fyrir lögreglu og viðbragðsaðila
Á vegum ríkisins hefur frá júní 2020 verið unnið að undirbúningi byggingar sameiginlegrar aðstöðu fyrir löggæslu- og viðbragðsaðila á höfuðborgarsvæðinu, einkum fyrir embætti ríkislögreglustjóra, Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu, Landhelgisgæslu Íslands, Tollgæsluna, Neyðarlínuna, Slysavarnafélagið Landsbjörgu og yfirstjórn Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins. Áætlað er að þörf sameiginlegs húsnæðis fyrir starfsemina sé um 26 þúsund fermetrar. Áformað er að koma þessari almannaþjónustustarfsemi fyrir í nýbyggingu á lóðinni milli Kleppssvæðisins og Holtagarða.
Lóðargjald, miðað við að nýtingarhlutfall á lóðinni sé 0,5, er 390 milljónir króna, sem Reykjavíkurborg greiðir Faxaflóahöfnum við úthlutun. Fyrir umfram byggingarmagn greiðist viðbótarlóðargjald sem nemur gatnagerðargjaldi. Miðað við fjárhæð gatnagerðargjalds nú og að húsnæðið undir almannaþjónustuna verði 26 þúsund fermetrar, myndi viðbótarlóðargjald nema um 264 milljónum króna. Samanlagt yrði fjárhæð lóðagjalds þá um 654 milljónir. Umfram fjárhæðin kemur til greiðslu við útgáfu byggingarleyfis.
Reykjavíkurborg mun annast endurskoðun á gildandi deiliskipulagi lóðar björgunarmiðstöðvarinnar og eftir atvikum aðalskipulagi borgarinnar, í samvinnu við ríkið.
Við gerð deiliskipulags skal meðal annars skilgreina byggingarheimildir og umferðartengingar með hliðsjón af fyrirhugaðri starfsemi. Verði þörf á viðbótarlandi eða athafnasvæði til að tryggja forgangsakstur eða umferðarflæði mun Reykjavíkurborg taka jákvætt í slíkar umleitanir verði sýnt fram á mikilvægi þess.
Aukin íbúðabyggð í Fossvogi
Í makaskiptunum framselur Reykjavíkurborg lóðarleiguréttindi að framangreindri lóð en fær í staðinn til eignar um 30.000 fermetra lóð við Borgarspítala. Á lóðinni í Fossvogi mun Reykjavíkurborg þróa aukna íbúðabyggð og þegar þeirri vinnu lýkur verður hægt að bjóða til sölu byggingarrétt á lóðum á svæðinu.