Big Bang Festival í Hörpu á sumardaginn fyrsta
Big Bang tónlistarhátíð fyrir yngri áheyrendur verður nú haldin í fyrsta sinn á Íslandi á sumardaginn fyrsta, fimmtudaginn 21. apríl 2022 í Hörpu.
Tónlistarhátíðin var stofnuð árið 2010 af sex evrópskum samstarfsaðilum og markmið hátíðarinnar er að auka aðgengi barna að tónlist.
Big Bang tónlistarhátíðin stendur frá klukkan 11-17 með fjölbreyttri dagskrá fyrir börn. Áheyrendur fá að upplifa fjölbreytta efnisskrá sem samanstendur af tónleikum, innsetningum og tónlistartengdum smiðjum undir handleiðslu fagfólks í tónlist. Þarna gefst líka tækifæri til skyggnast í afkima Hörpu sem venjulega eru ekki opnir almenningi. Athugið frítt er á alla viðburði hátíðarinnar.
Sérstök áhersla er lögð á tónlistarfólk og tónskáld sem sjá ævintýrið í tónlistarsköpun sinni og vilja leita frjórra leiða til að kynna tónlist fyrir börnum og deila með þeim sviðinu.
Frítt inn!
Öll velkomin!