Báru óskir upp við borgarstjóra
Borgarstjóri hlustaði á óskir nemenda Vesturbæjarskóla og á tónverk barna í Landakotsskóla við opnun sýningarinnar LÁN – Listrænt ákall til náttúrunnar í Sjóminjasafninu. Sýningin er hluti af barnamenningarhátíð og við vinnslu verkanna veltu börnin fyrir sér hvað hægt sé að gera til að vernda lífríki sjávar.
„Það að börnin fái að hitta borgarstjóra, færa honum óskir sínar og flytja fyrir hann tónverk sýnir þeim að það sem þau gera skiptir máli,“ segir Ásthildur Jónsdóttir, verkefnastjóri LÁN. Hún bætir við að sýnileiki þeirra sé lykilþáttur í menntun þeirra til sjálfbærni og getu til aðgerða. Eins segist hún viss um að einhverjar óskanna muni rata inn í ákvarðanatöku framtíðarinnar hjá borginni. „Mjög mörg börn vilja fleiri græn svæði, vilja planta fleiri trjám, sem þýðir að börnum líður vel í náttúrunni. Eitthvað sem við verðum að hafa í huga, kennarar og stjórnendur borgar og bæja, er að skapa aðstæður þar sem fólkinu okkar líður vel,“ segir Ásthildur og minnir á mikilvægi útikennslu og hvernig söfn og önnur rými utan skólanna geti nýst vel til að auka fjölbreytni. Hún rifjar upp sögu af barni í Laugarnesskóla sem var í útikennslu í Grasagarðinum: „Ég fæ pláss til að hugsa þegar ég er svona úti.“
Dæmi um lærdóm barnanna af vinnunni er rækjuverkefni barnanna í Landakotsskóla. Þau fengu allskonar rækjur til að vinna út frá, gerðu myndir og lærðu um hringrásarhagkerfið og hvernig nýta megi ýmsar afurðir rækjunnar í ýmislegt eins og í snyrtivörur og lyf.
Ásthildur segir hlutverk Barnamenningarhátíðar mikilvægan þátt í vinnu barnanna í vetur. Það skipti máli að hafa eitthvað til að stefna að. Þá nefnir hún mikilvægi þess að sýningarnar séu vítt og breitt um borgina og ólík hverfi fái að njóta sín.
Listrænt ákall til náttúrunnar (LÁN) er þverfaglegt þróunarverkefni á vegum Skóla- og frístundasviðs Reykjavíkur. Á barnamenningarhátíð sýna 15 LÁN skólar verkefni þar sem málefni náttúrunnar eru sýnd á skapandi og nýstárlegan hátt unnin með aðferðum list- og verkgreina. Listaverkin eru vel lukkuð og hafa forsendur til að hreyfa við sýningargestum sem vonandi spyrja sig áleitinna spurninga sem tengjast daglegu lífi og hvað við getum gert til að feta veginn að sjálfbærara samfélagi. Verkin sýna hvernig skólastarf hefur skapað aðstæður fyrir nemendur til að brúa bilið milli þekkingar og þeirra gilda sem við viljum lifa eftir með skipulagningu listrænna viðburða.