Ármann og Þróttur þjóna nýjum hverfum

Heilsa Íþróttir og útivist

Ármann og Þróttur munu þjóna nýjum hverfum í borginni.

Íþróttafélögin Ármann og Þróttur munu sameiginlega þjóna nýjum hverfum í Voga- og Höfðabyggð. Þá munu félögin einnig þjóna Bryggjuhverfi þegar skóli verður kominn þangað.

Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð gerði tillögur um þetta eftir samráð við fulltrúa íþróttafélaganna Ármanns, Fjölnis, Fylkis, Víkings og Þróttar og voru tillögurnar samþykktar í borgarráði í gær. Ármann og Þróttur munu eftir sem áður þjóna Laugardalssvæðinu en skoðað verður hvort höfuðstöðvar Ármanns og félagsaðstaða flytjist í Vogabyggð eða hvort sameiginlegar höfuðstöðvar félaganna verði áfram í Laugardal. 

Gert er ráð fyrir að gengið verði til samninga við Ármann og Þrótt um þjónustu, uppbyggingu og rekstur í hverfunum. Ekki er gert ráð fyrir að fjölga hverfafélögum heldur veiti Ármann og Þróttur heildstæða þjónustu í sameiningu á öllu starfssvæðinu, sem byggi á því að þjónusta félaganna eftir íþróttagreinum skarist hvergi.