Alþjóðasamstarf komið af stað eftir langt hlé

Þátttakendur í Erasmus+ verkefninu Facilitating e-Learning for an Inclusive Pedagogy.

Fjör hefur færst í alþjóðasamstarf skóla- og frístundasviðs síðustu daga og vikur eftir lægð vegna Covid faraldursins síðustu tvö ár. Gestir frá tíu löndum komu í heimsókn fyrstu vikuna í apríl til að kynna sér fræðslu- og menningarstarf barna og ungmenna í Reykjavík. Þá hélt hópur utan til Danmerkur til að taka þátt í ráðstefnu um vellíðan ungra í norrænum borgum.

Fagskrifstofa skóla- og frístundasviðs tók á móti skólastjórum og ráðgjafa frá Normandi í Frakklandi, umboðsmanni barna í Litháen, og pólskri og danskri sendinefnd. Pólsku gestirnir voru viðstaddir opnunarviðburð Barnamenningarhátíðar í Hörpu og voru frá sér numdir yfir því hversu virk börnin voru og dagskráin flott. Þau höfðu aldrei upplifað viðlíka þátttökuviðburð, dönsuðu með og supu hveljur yfir sirkusnum.

Miðja Máls og læsis tók á móti þátttakendum í Erasmus+ verkefninu Facilitating e-Learning for an Inclusive Pedagogy. Markmið verkefnisins er að setja upp verkfærakistu fyrir kennara þar sem þeir finna verkfæri, kennsluaðferðir og kennsluáætlanir til að vinna með vendinám á netinu. Þátttakendur verkefnisins eru frá sjö löndum og starfa við kennslu á unglinga- og framhaldsskólastigi. Þeir koma frá Zilina í Slóvakíu, Cueno á Ítalíu, Manresa í Katalóníu, Volvos í Grikklandi, Berlín í Þýskalandi og frá starfsþróunarmiðstöðvum á Reykjavík. Þar að auki eru háskólaprófessorar frá kennaraháskólanum í Gaziantep í Tyrklandi. Áður hafa verið haldnar vinnuvikur í Berlín og Gaziantep.

Nánar um verkefnið: https://www.e-flip-erasmus.eu/wp-content/uploads/2022/02/e-FLIP-Model.pdf; https://www.e-flip-erasmus.eu/

Tólf manna hópur frá skóla-og frístundasviði og velferðarsviði Reykjavíkur fór á ráðstefnuna Hjerte og smerte í Árhúsum í Danmörku. Í hópnum voru deildarstjórar barna- og unglingastarfs í Grafarvogi og Árbæ, tveir skólastjórar, auk fagstjóra grunn- og leikskóla frá skóla- og frístundasviði. Ráðstefnan snýst um velferð barna í stærri bæjum og borgum á Norðurlöndum. Alls tóku um 400 manns frá tíu borgum á Norðurlöndunum þátt.

Hægt er að nálgast allar upplýsingar um alþjóðasamstarf og styrki á vegum Nýsköpunarmiðju menntamála á https://menntastefna.is/althjodasamstarf-og-styrkir/