94% ánægð með sumarnámskeiðin

""

Ánægja með sumarnámskeið frístundaheimila og sértækra félagsmiðstöðva hefur aukist samkvæmt könnun skóla- og frístundasviðs á sumarstarfinu.

Hrósað fyrir fjölbreytni og faglegt starf

Könnunin var gerð haustið 2021 þegar síðustu námskeiðum sumarsins, á vegum skóla- og frístundasviðs Reykjavíkurborgar, var ný lokið. Markmið könnunarinnar er að bæta sumarstarfið með því að gefa foreldrum tækifæri til að tjá sig. Þá fá stjórnendur og starfsfólk endurgjöf á starfið.

Könnunin sýndi að 94 prósent svarenda voru mjög eða frekar ánægð með sumarfrístundina, 4 prósent gáfu svarið hvorki né og 2 prósent sögðust óánægð. Það er hækkun um 3 prósentustig frá 2018 þegar 91 prósent sögðust ánægð. 94 prósent sögðu að barnið hafi komist að í þeirri viku eða vikum sem þjónustunnar var mest þörf. Starfsfólk fékk hrós í opnum svörum fyrir fjölbreytni, gott viðmót gagnvart börnunum, gott skipulag, faglegt starf, fjölbreytta dagskrá og fyrir að hugsa í lausnum. Þá var alloft tekið fram að úrræði hjálpaði foreldrum.

Þetta er í þriðja sinn sem foreldrakönnunin er gerð, en hún var líka framkvæmd 2016 og 2018. Könnunin var send á foreldra barna á samtals 38 frístundaheimilum og fjórum sértækum félagsmiðstöðvum. Alls svörðu 1448 af 2481 sem fengu könnunina senda og svörunin því 58 prósent.