2.700 íbúðir á byggingarstigi í Reykjavík

Íbúðir í byggingu í Grafarholti.

Samkvæmt yfirliti húsnæðisáætlunar í Reykjavík sem birt er ársfjórðungslega og kynnt í borgarráði voru áform um byggingu 1.285 nýrra íbúða samþykkt í Reykjavík á síðasta ári.

Íbúum í Reykjavík fjölgaði um 2.420 í fyrra.

Deiliskipulagsáætlanir fyrir alls 1.184 nýjar íbúðir í borginni voru einnig auglýstar í b-deild Stjórnartíðinda á nýliðnu ári.

Þetta kemur fram í ársfjórðungsyfirliti húsnæðisáætlunar Reykjavíkur sem kynnt var í borgarráði í síðustu viku en í yfirlitinu er farið yfir stöðuna á framgangi húsnæðisáætlunarinnar. Yfirlitið er hið fjórða í röðinni þar sem tekin er punktstaða á uppbyggingu íbúða í borginni. Um leið eru dregnar  saman tölur um uppbygginguna fyrir allt árið 2021.

Embætti byggingarfulltrúa samþykkti áform um uppbyggingu á 1.285 íbúðum og skráði 1.065 íbúðir á byggingarstig eitt sem þýðir að framkvæmdir við þær fóru af stað.

Í upphafi þessa árs eru því tæplega 2.700 íbúðir í byggingu í borginni. Miðað við tveggja ára byggingartíma má því ætla að 1.350 nýjar íbúðir komi á markað árlega á næstu tvö árin. Markmið borgarinnar gera ráð fyrir að eitt þúsund nýjar íbúðir bætist við á hverju ári næstu árin. Ljóst er að talsvert fleiri íbúðir munu koma á markaðinn á næstu tveimur árum eða hátt í 700 til viðbótar.  

Reykjavíkurborg úthlutaði lóðum fyrir 409 íbúðir á síðasta ári og áætlar að lóðum verði úthlutað fyrir 1.089 íbúðir á þessu ári.  

Staðan hjá Reykjavíkurborg er þannig að í dag eru til lóðir þar sem byggja má 3.152 íbúðir í samþykktu deiliskipulagi. Ef öll þau verkefni fara í gang á næstu tveimur árum geta yfir 1.500 íbúðir komið á markað á árunum 2024-2025. Helmingur þessara byggingarverkefna er í höndum einkaaðila en borgin heldur enn á um helming lóðanna.  

Þá voru verkefni þar sem byggja má yfir 9.000 íbúðir í skipulagsferli um áramótin. Af þeim eru 2.407 íbúðir þar sem búið er að samþykkja skipulagið af hálfu borgarinnar og umsagnarferli Skipulagsstofnunar einungis eftir. Þá eru 2.573 íbúðir á reitum þar sem deiliskipulagstillögur hafa þegar verið auglýstar til kynningar. Mesta uppbyggingarskeiði í sögu Reykjavíkur er því rétt að hefjast.

Nánari útlistun má finna í ársfjórðungsyfirlitinu: