13 styrkjum úthlutað úr úrbótasjóði tónleikastaða

Tónleikar hljómsveitarinnar Of Monsters and Men.

Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð Reykjavíkur hefur samþykkt að veita styrk úr úrbótasjóði tónleikastaða í Reykjavík til 13 tónleikastaða og menningarhúsa sem sinna lifandi tónlistarflutningi.

Hlutverk úrbótasjóðsins er að styðja við tilvist minni og miðlungs stórra tónleikastaða í Reykjavík með því að veita styrki til úrbóta á tónleikastöðunum hvað varðar aðstöðu, aðbúnað og aðgengi. Þannig er stuðlað að áframhaldandi aðstöðu fyrir lifandi tónlistarflutning í borginni sem styður um leið við tónlistarlífið allt og eflir mannlífið.

Alls bárust 14 umsóknir frá tónleikastöðum og menningarhúsum og nam heildarupphæð sem sótt var um 21,6 milljón króna. Faghópur skipaður fulltrúum STEF, FÍH og FHF fór yfir umsóknirnar sem bárust og lagði fram tillögur um styrkjaúthlutun sem ráðið samþykkti.

Þeir tónleikastaðir eða menningarhús sem hljóta styrk úr úrbótasjóði tónleikastaða 2022 eru;

12 Tónar, Gamla Bíó, Hannesarholt, Hellirinn í Tónlistarþróunarmiðstöðinni, Lemmy, Mengi, Prikið, R6013, Smekkleysa/STAK, Stelpur rokka!, Tjarnarbíó, Tónhylur og Ölver.