Vísindaþorpið í Vatnsmýri verður markaðssett alþjóðlega undir heitinu Reykjavík Science City og í vikunni voru þessar fyrirætlanir kynntar fyrir fjölmiðlum og aðstandendum verkefnisins af Íslandsstofu sem leiðir markaðsátakið sem er að hefjast.
Reykjavíkurborg, Háskóli Íslands, Háskólinn í Reykjavík, Landspítalinn og Vísindagarðar HÍ standa sameiginlega að Vísindaþorpinu og byggir samstarfið á þeirri sýn að hugvit, nýsköpun og tækni verði burðarásar í verðmætasköpun Íslendinga.
Tilgangur verkefnisins er að stuðla að því að Ísland verði eftirsóttur staður til rannsókna, þróunar og fjárfestinga auk þess að laða erlend fyrirtæki og sérfræðinga til landsins. Í Vísindaþorpinu verður lögð áhersla á uppbyggingu svokallaðrar grænnar og blárrar tækni (e. Greentech og e. Bluetech) og lífvísinda en Íslendingar hafi þegar aflað sér mikillar þekkingar á þeim sviðum og eiga þar inni öflug tækifæri.
Öflugt þekkingarsamfélag meginstoð í samkeppnishæfni borgarinnar
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir Vísindaþorpið vera eina af meginstoðum borgarinnar í atvinnumálum. „Við þurfum fjölbreytt atvinnulíf og öflugt þekkingarsamfélag er liður í samkeppnishæfni borgarinnar. Öðrumegin í borginni er að vaxa Þorp skapandi greina í Gufunesi og hinumegin erum við með Vatnsmýrina sem samanstendur af framúrskarandi rannsóknum á sviði læknavísinda við Landspítalann, að Háskóla Íslands og Háskólanum í Reykjavík. Nú þegar eru starfandi framsækin og stöndug fyrirtæki eins og CCP, deCODE og Alvogen auk fjölda lítilla og meðalstórra sprotafyrirtækja á sviði tækni og vísinda. Við erum staðráðin í að fjölga stórum og öflugum þekkingarfyrirtækjum á svæðinu og auka enn á gróskuna hjá minni fyrirtækjum og sprotum. Framtíðin er því björt í Vatnsmýrinni og hryggjarstykkið verður Vísindaþorpið,“ segir Dagur.
Störfum í hugverkaiðnaði fjölgaði um 14% í heimsfaraldri
Jarþrúður Ásmundsdóttir, fagstjóri hugvits, nýsköpunar og tækni hjá Íslandsstofu segir mikil tækifæri í þessum efnum. Mikill vöxtur hafi verið í gjaldeyristekjum hugverkaiðnaðarins undanfarin ár og áhrif Covid-19 undirstriki enn frekar hve mikilvægt er fyrir íslenskt efnahagslíf að styrkja og fjölga stoðum í efnahagslífinu.
„Það er þörf á enn frekari vexti í greinum tengdum hugviti, nýsköpun og tækni Reykjavík Science City er til að styðja við þann vöxt. Tækifærin eru svo sannarlega fyrir hendi,“ segir Jarþrúður og bendir á að samkvæmt rannsókn Íslandsstofu á rekstrarumhverfi slíkra fyrirtækja hafi komið í ljós að á árinu 2020 fjölgaði starfsgildum þar um 14% á sama tíma og heimsfaraldur Covid-19 gekk hér yfir með tilheyrandi uppsögnum og atvinnuleysi.
Frá Siri og Google í Vatnsmýrina
Á kynningarfundinum sagði Guðmundur Hafsteinsson, forstjóri og stofnandi Fractal 5 frá mikilvægi drífandi umhverfi fyrir tækni- og nýsköpunarfyrirtæki. Guðmundur hefur yfir 20 ára starfsreynslu í tæknigeiranum, hefur stofnaði tæknifyrirtæki og selt í Bandaríkjunum og var meðal annars yfir vöruþróun hjá Siri sem var síðar keypt af Apple, og einnig yfir vöruþróun á Google Assistant. Eftir að hafa starfað í Bandaríkjunum í yfir fimmtán ár flutti hann aftur til Íslands vorið 2019. Fractal 5 teymið hefur starfsstöð í Grósku og vinnur að þróun hugbúnaðar sem kallast break.is til að auðvelda fólki að eiga í innihaldsríkari samskiptum við fleiri einstaklinga.
Guðmundur sagði að Ísland hefði margt eftirsóknarvert að bjóða. Hann sagðist gjarnan hvetja ungt fólk til að hleypa heimdraganum og vinna erlendis til að geta þá betur notið þess að koma aftur. Ísland kæmi vel út í samanburðinum.