Vetrarfrí er í grunnskólum Reykjavíkur mánudaginn 22. og þriðjudaginn 23. febrúar. Nemendur mæta aftur í skóla- og frístundastarf miðvikudaginn 24. febrúar.
Fjölbreytt dagskrá er í boði fyrir börn og fjölskyldur í frístundamiðstöðvum og menningarstofnunum borgarinnar í vetrarfríinu og víða endurgjaldslaus fræðsla og skemmtun.
Hægt er að kynna sér allt sem í boði er fyrir börn og fullorðna á vefnum Vetrarleikir í Reykjavík – sem einnig er á ensku.
Njótum samveru í vetrarfríinu!