Umferðarljós við Sæbraut-Sundagarða óvirk á fimmtudagsmorgun

Samgöngur Umhverfi

""

Umferðarljós við gatnamót Sæbrautar og Sundagarða verða óvirk fimmtudagsmorguninn 14. janúar á milli klukkan 5 og 7. Straumleysið er vegna viðgerða hjá Veitum.

Rafmagnsleysið verður á svæði við Sundagarða og Sundaborg en nánar er hægt að lesa um hvar rafmagnsleysið hefur áhrif og skoða kort á vef Veitna.