Umbúðir spilla bragði Risa Þrists

Innkallanir matvæla Heilbrigðiseftirlit

""

Sælgætisgerðin Kólus ehf. hefur að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum sælgætið Risa þrist.

Umbúðir vörunnar hafa spillt skynmatseiginleikum hennar þannig að aukabragð eða lykt finnst þegar hennar er neytt eða umbúðir eru opnaðar.

Umbúðirnar geta gert matvælin óhæf til neyslu.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

  • Vörumerki:   Sambó
  • Vöruheiti:   Risa Þristur - lakkrís- og súkkulaðistangir með karamellufyllingu        
  • Geymsluþol: Best fyrir  Dagsetning: 16.11.21 & 08.01.22
  • Strikamerki: 5690649006652
  • Lotunúmer: L350 & L357
  • Nettómagn: 50 g
  • Geymsluskilyrði: Á ekki við
  • Framleiðandi: Kólus ehf., Tunguhálsi 5, 110 Reykjavík
  • Framleiðsluland: Ísland

Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:

Kólus ehf., Tunguhálsi 5, 110 Reykjavík.

Dreifing:

Bónus, Krónan, Hagkaup, verslanir Samkaupa, verslanir N1, Olís og Skeljungs.

Neytendur sem keypt hafa Risa Þrist með framangreindum dagsetningum geta skilað vörunni þangað sem hún var keypt eða til Kólus, Tunguhálsi 5.

Nánari upplýsingar um innköllunina fást hjá Kólus í síma 535 0300 eða á netfanginu kolus[hja]sambo.is.