Styrkir sem stuðla að auknu mannlífi og menningu í hverfunum árið 2021
Umhverfi Menning og listir
Auglýst er eftir verkefnum og viðburðum sem ætlað er að stuðli að auknu mannlífi, menningu, félagsauði og lífsgæðum í hverfunum árið 2021.
Mikilvægt er að verkefnin höfði til allra aldurshópa og skírskoti til breiðs hóps fólks sem vill sækja sér afþreyingu og upplifun í eigin hverfi.
Íbúaráð Reykjavíkur úthlutuðu styrkjum í upphafi sumars en í nokkrum hverfum stendur eftir fjármagn sem enn á eftir að úthluta. Hægt er að sækja um styrk á rafrænu umsóknarformi neðst á þessari síðu. Eftirstöðvar sjóðsins eru eftirfarandi:
Íbúaráð Grafarholts og Úlfarsárdals kr. 1.490.000
Íbúaráð Háaleitis- og Bústaðahverfis kr. 530.000
Íbúaráð Laugardals kr. 2.130.000
Íbúaráð Vesturbæjar kr. 760.000
Umsóknarfrestur er frá 17. september – 4. október 2021. Að öllu jöfnu er miðað við að styrkupphæðir fyrir hvert verkefni, séu á bilinu kr. 50.000 til 500.000.
Hverjir geta sótt um og hvað er styrkt?
Einstaklingar, félagasamtök eða aðrir hópar sem vinna saman að einstöku verkefni geta sótt um styrk í sjóðinn. Markmið sjóðsins er að efla hverfisanda, félagsauð, mannlíf og menningu í hverfunum.
Styrkir geta til dæmis fallið til:
Viðburða í hverfum borgarinnar sem höfða til allra aldurshópa
Markaða sem efla líf í hverfinu
Tónleika, listviðburða eða annað sem eflir hverfisvitund
Pop - up leikvalla og þrautabrauta í hverfunum
Viðburða tengdum jólahaldi eða áramótum
Önnur verkefni sem eru til þess fallin að auka félagsauð og styrkja hverfisvitund
Styrknum er ekki ætlað að koma í stað launa heldur vegna efniskostnaðar, kaupa á listviðburðum, kostnaði við leiðbeinendur, auglýsingakostnað eða veitingar.
Vakin er athygli á því að viðburðir eða verkefni eru ekki styrkt eftir á.
Styrkþegar skulu þegar við á sækja um nauðsynleg leyfi fyrir framkvæmd verkefnis, t.d. notkun á borgarlandi og uppsetningu mannvirkja.
Frekari leiðbeiningar eru veittar hjá starfsmönnum mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu: hverfissjodur@reykjavik.is.