Starfshópar skoði breytingar á skólahúsnæði

Skóli og frístund

Children playing pogo on the grounds of Austurbæjarskóli.

Tveir starfshópar munu á næstu mánuðum skoða breytingar á skólahúsnæði og skólahverfum í Laugarnesi, Hlíðum og Miðborg.

Um nokkurra ára skeið hefur verið ljóst að vegna viðvarandi fjölgunar nemenda er farið að þrengja að í skóla- og frístundahúsnæði Háteigsskóla, Hlíðaskóla og Austurbæjarskóla. Í haust sem leið eignaðist Reykjavíkurborg Vörðuskóla á Skólavörðuholti og var skóla- og frístundasviði falið að útfæra starfsemi fyrir unglingaskóla þar. 

Á fundi skóla- og frístundaráðs 26. janúar var samþykkt einróma að stofna starfshóp til að meta og útfæra tillögur um framkvæmd grunnskóla- og frístundastarfs í áðurnefndum skólum í ljósi aukins nemendafjölda. Starfshópurinn mun skila tillögum sínum í lok mars.

Annar starfshópur mun rýna stöðuna í Laugarnes- og Langholtshverfi með tilliti til úrbóta í húsnæðismálum grunnskóla- og frístundastarfs.

Fjölgun nemenda í þessu hverfi veldur þrengslum í Laugarnesskóla, Laugarlækjarskóla og Langholtsskóla.

Starfshópurinn mun skila tillögum í lok febrúar.