Staða framkvæmda við Fossvogsskóla 26. ágúst

Skóli og frístund

""

Flutningur og uppsetning einingahúsa sem nýta á fyrir kennslu 1.- 4. bekkjar í Fossvogsskóla hefst samkvæmt áætlun á morgun. Búast má við álagi í hverfinu næstu viku á meðan flutningi stendur.

Hafist verður handa við flutning og uppsetningu kennslueininganna í fyrramálið, föstudaginn 27. ágúst og má búast við umferð stórra flutningabíla í nágrenni skólans næstu viku á milli klukkan 9 og 13. Öryggisstjóri mun vera á vinnusvæðinu á álagstímum og fyrirkomulag flutnings verður skipulagt til að valda sem minnstu raski fyrir nemendur og starfsmenn skólans. 

Í einingahúsunum verða fimm kennslustofur, gangar með aðstöðu fyrir útiföt, salerni, sem og aðstaða fyrir kennara og annað starfsfólk. Teymi frá framleiðanda húsanna mun, ásamt þjónustuverktökum vinna með starfsfólki Reykjavíkurborgar við uppsetninguna til að tryggja að hún fari fram hratt og örugglega. Þegar hafa verið lagðar lagnir og unnið að undirbúningi lóðarinnar. Einnig er búið að ráða verktaka til að vinna við innréttingar og allan annan frágang. 

Gert er ráð fyrir að kennslueiningarnar verði tilbúnar til notkunar um miðjan september og munu nemendur sem nú sækja skóla í húsnæði Hjálpræðishersins við Suðurlandsbraut þá flytjast aftur heim í Fossvogsdal.