Skýr niðurstaða í könnun meðal foreldra og kennara í Fossvogsskóla

Skóli og frístund

""

Mikil þátttaka var meðal kennara og foreldra barna í 2. til 4. bekk Fossvogsskóla í könnun sem Reykjavíkurborg sendi út í gær þar sem boðið var upp á þrjá valkosti fyrir tímabundið húsnæði fyrstu vikur skólaársins. Niðurstöður voru á þá leið að yfirgnæfandi meirihluti foreldra og kennara lýsti yfir stuðningi við að skólastarfið í þessum árgöngum færi fram í nýju húsnæði Hjálpræðishersins við Suðurlandsbraut.

Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar sendi í gær út könnun til starfsmanna og foreldra barna í 2. til 4. bekk Fossvogsskóla þar sem hugur þeirra til þriggja valkosta í húsnæðismálum fyrir fyrstu vikur skólaársins var kannaður. Yfirgnæfandi meirihluti foreldra (um 70%) og starfsfólks (um 90%) valdi þriðja kostinn sem fyrsta valkost, en hann felur í sér að börnin munu fara með skólarútu í nýtt húsnæði Hjálpræðishersins. Borgaryfirvöld hafa tekið ákvörðun byggða á niðurstöðunum og munu árgangarnir hefja nám í húsnæði Hjálpræðishersins við Suðurlandsbraut 72 á mánudagsmorgun. 

Hjálpræðisherinn hefur boðið afnot að húsakynnum starfseminnar fyrir fyrstu vikur skólaársins 2021-2022. Skólastjórnendur og annað starfsfólk hafa kynnt sér aðstæður þar síðustu daga og segja þær til fyrirmyndar. Húsnæðið var tekið í notkun í desember á síðasta ári og þar eru loftgæði með besta móti og hljóðvist til fyrirmyndar. Kennsla mun fara fram í rúmgóðum rýmum með stórum gluggum. Þá er aðstaða fyrir kennara mjög góð. Salernisaðstaða er mjög aðgengileg og þægileg, auk þess sem beinn aðgangur er að garði sunnan við húsið. Á lóð hússins eru ný leiktæki, vellir fyrir boltaleiki og stutt í önnur útivistarsvæði.

Skólastarf hefst samkvæmt áætlun hjá öllum árgöngum Fossvogsskóla mánudagsmorguninn 23. ágúst og munu börn í 2. til 4. bekk fara í rútu frá Fossvogsskóla klukkan 8:20.