Sementsturnarnir á Sævarhöfða verða tákn sjálfbærni

Útsendingar Umhverfi

""

Sementsturnarnir á Sævarhöfða standa áfram, fá nýtt líf og verða tákn sjálfbærni. Þetta kom fram þegar niðurstöður í alþjóðlegu hönnunarsamkeppninni Reinventing Cities var kynnt í morgun. Vinningstillagan gerir ráð fyrir borgarbúskap, veitingastað og lifandi samfélagsmiðju í ört stækkandi Bryggjuhverfi.

Hönnunarteymið kallar tillögu sína Vaxtarhús og hefur hringrásarhagkerfið að leiðarljósi. Í forsendum samkeppninnar voru þátttakendur hvattir til að sýna fram á skapandi hugsun og bjarta framtíðarsýn með grænt og vistvænt borgarumhverfi í huga.  

Maríus Þór Jónasson og Sigríður Ósk Bjarnadóttir hjá VSÓ Ráðgjöf; Kristbjörg María Guðmundsdóttir hjá MStudio og Björn Gunnlaugsson hjá Íslenskum fasteignum tóku við viðurkenningu í morgun úr hendi Dags B. Eggertssonar, borgarstjóra.

Í kynningu sinni sögðu verðlaunahafarnir að hugmyndirnar gerðu ráð fyrir að draga verulega úr kolefnislosun miðað við hefðbundna hönnun. Endurnota á byggingar og byggingarefni; byggingareiningar verða hannaðar til að taka í sundur; notuð verða umhverfisvæn efni s.s. „græn steypa“ og orkunotkun verður lágmörkuð.

„Svæðið hefur ríka steypusögu og það eru mikil tækifæri að vinna með þennan efnivið. Þarna er mikil steypa og frábært ef hægt er að nota hana áfram,“ segir Sigríður Ósk Bjarnadóttir. „Það er til mikils að vinna ef við getum gert steypu umhverfisvænni og sýnt fram á það sé hægt“.

Hugmyndirnar sem unnið hefur verið með tengjast sjálfbærri þróun, „kaupmanninum á horninu“, lóðréttum landbúnaði í þéttbýli, samfélagsgörðum, Bokashi jarðgerðarþjónustu, endurnýtingu á affallsvatni og að því að gera svæðið að eftirsóknarverðri miðstöð fyrir hverfið.

Tengt efni: