Samstaða um útivistarreglur barna

Velferð Skóli og frístund

""

Borgarstjóri, Dagur B. Eggertsson, og lögreglustjórinn í Reykjavík, Halla Bergþóra Björnsdóttir, undirrituðu í morgun bréf sem sent verður til foreldra/forsjáraðila inn á heimili barna í fyrsta og  sjötta bekk í grunnskólum borgarinnar til að minna á útivistarreglur.

Með bréfinu er fjölskyldunni færður lítill segull með yfirliti yfir útivistartíma barna og unglinga. Segulinn má til dæmis hengja á ísskáp til að minna alla í fjölskyldunni á gildandi reglur um útivistartíma.

Markmiðið með útivistarreglunum er að stuðla að heilbrigðu umhverfi fyrir börn og unglinga. Reglurnar eru fyrst og fremst settar til verndar börnum og stuðla að því að þau séu ekki ein og eftirlitslaus úti eftir að rökkva tekur.

Jafnframt er minnt á mikilvægi svefns því góður svefn stuðlar að andlegri og líkamlegri vellíðan og því mikilvægt að hafa góða reglu á svefntíma alla daga vikunnar. Með því að virða útivistarreglurnar og gæta þess að fá nægan svefn erum við betur undir það búin að takast á við verkefni dagsins. Hægt er að nálgast fræðsluefni á #sofumbetur á samfélagsmiðlum.

Allir foreldrar vilja börnunum sínum það besta. Útivistarreglurnar hjálpa foreldrum að setja börnum sínum mörk og styðja þannig við bakið á foreldrum í uppeldishlutverkinu. Útivistarreglurnar gilda allan ársins hring og alla daga; virka daga, um helgar og hátíðisdaga.