Reitir fasteignafélag og Reykjavíkurborg hafa gert samkomulag um uppbyggingu á um 440 íbúðum á hinum svokallaða Orkureit, 26.000 fermetra lóð sem teygir sig meðfram Grensásvegi á milli Suðurlandsbrautar og Ármúla. Orkureiturinn er við fyrirhugaðan Borgarlínuás og ný borgarlínustöð verður framan við lóðina.
Fyrsti BREEAM vottaði uppbyggingarreiturinn í Reykjavík
Skipulag Orkureitsins er unnið út frá kröfum BREEAM Communities staðalsins, sem felur í sér að hugað er að sjálfbærum áherslum frá upphafi skipulagsvinnu og horft til fleiri þátta en alla jafnan er krafist við deiliskipulagsgerð. Reiturinn verður að líkindum fyrsta svæðið í Reykjavík til að hljóta slíka vottun. Skipulag reitsins byggir á vinningstillögu ALARK arkitekta í samkeppni sem haldin var um skipulag reitsins. Tillagan gerir ráð fyrir byggð með skjólgóðum og sólríkum inngörðum, sem eru að hluta til opnir og tengdir saman með göngu- og hjólastígum, sem jafnframt binda saman nærliggjandi svæði og hverfi ásamt því að veita greiðan aðgang að nýrri borgarlínustöð.
Uppbygging á Orkureitnum verður í samræmi við markmið og í anda húsnæðisáætlunar Reykjavíkurborgar þannig að um 15% íbúða á lóðinni verða leiguíbúðir, íbúðir Félagsbústaða, stúdentaíbúðir, búseturéttaríbúðir og/eða íbúðir fyrir aldraða.
Skipulagið er nú í samráðsferli og fer í formlega auglýsingu innan skamms. Gert er ráð fyrir að uppbygging á reitnum geti hafist á fyrri hluta ársins 2022.
Rafmagnsveituhúsið fær nýtt hlutverk
Deiliskipulagstillagan miðar að því að iðnaðarhúsnæði að Ármúla 31 og bakhús á miðri lóð víki fyrir 4-8 hæða nýbyggingum í borgarmiðuðu skipulagi. Tillagan gerir þannig ráð fyrir 40.872 m2 af íbúðarhúsnæði, um 440 íbúðum og 6.179 m2 af atvinnuhúsnæði. Samkvæmt fyrirliggjandi deiliskipulagstillögu verður heimilað byggingarmagn ofanjarðar 47.051 m2.
Gamla Rafmagnsveituhúsið fær virðingarsess á lóðinni, en Reitir hafa undanfarið veitt heilbrigðisyfirvöldum húsið að láni og þannig lagt sitt á vogarskálarnar í baráttunni við COVID-19 faraldurinn hér á landi.
„Þetta svæði býður upp á einstakt tækifæri fyrir borgina til að búa til spennandi og skemmtilega íbúabyggð meðfram Borgarlínunni sem mun ganga um Suðurlandsbraut. Þetta er nýr þróunarás borgarinnar frá austri til vesturs. Íbúar munu njóta þess að vera í nálægð við Laugardalinn og fjölbreytta þjónustu og verslun í sínu nánasta umhverfi,“ segir Dagur B. Eggertsson borgarstjóri.
Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita, segir fyrirtækið leggja mikið upp úr vönduðu skipulagi og sjálfbærni.
“Við hjá Reitum höfum lagt mikið upp úr vönduðu skipulagi reitsins og höfum því gengið töluvert lengra en lög og reglugerðir gera ráð fyrir, meðal annars í þá átt að hugað sé að aðlögun að loftlagsbreytingun, sjálfbærri orku- og vatnsnýtingu, efnisvali og ofanvatnslausnum. Með því að skoða sérstaklega vel hönnun húsa með tilliti til vinds, sólar og umferðarhljóðs viljum við skapa húsnæði sem stenst kröfur bæði í nútíð og framtíð.”
Hverfið er einstaklega vel staðsett, meðal annars við Borgarlínuásinn. Það er í nálægð við alla þá þjónustu sem Múlarnir og Skeifan bjóða upp á ásamt góðu aðgengi að útivistarsvæði í Laugardal,” segir Guðjón
Um Reiti fasteignafélag
Reitir fasteigafélag byggir á arfleifð umsvifa sem hófst með byggingu Kringlunnar sem opnaði árið 1987. Innan eignasafnsins er skrifstofuhúsnæði, verslunarhúsnæði, sérhæft atvinnuhúsnæði og hótel, auk metnaðarfullra þróunarverkefna. Á síðari árum hafa Reitir hlúð að sögufrægum byggingum og hafa þannig staðið vörð um íslenskan menningararf á sama tíma og horft er til sjálfbærrar framtíðar. Reitir fasteignafélag er skráð í Kauphöll Íslands og eru íslenskir lífeyrissjóðir stærstu eigendur félagsins.