Aðföng hefur að höfðu samráði við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum SFC Take Home Boneless Bucket 650 g og SFC Southern Fried Chicken Strips 400 g kjúklingabita.
Hvað varðar SFC Take Home Boneless Bucket 650 g kjúklingabita sem verið er að innkalla að þessu sinni er um að ræða útvíkkun á innköllun á sömu vöru frá 3. mars 2021.
Ástæða innköllunar er að salmonella hefur greinst í vörunum. Salmonella getur valdið niðurgangi, kviðverkjum, ógleði, hita og uppköstum. Nánari upplýsingar um salmonellu á vef Matvælastofnunar.
Upplýsingar um vörur sem innköllunin einskorðast við:
- Vörumerki: SFC
- Vöruheiti: Take Home Boneless Bucket - Crunchy golden pieces of tasty, succulent Chicken Crispy Strips, Dippers and Poppets coated in a Southern Fried Style coating
- Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: Allar dagsetningar til og með 30.06.2022
- Lotunúmer: Öll lotunúmer
- Strikamerki: 5031532020629
- Nettómagn: 650 g
- Geymsluskilyrði: Frystivara
- Vörumerki: SFC
- Vöruheiti: Southern Fried Chicken Strips - Crunchy, golden, succulent Chicken Fillet Strips covered in our extra special recipe Southern Fried Style coating
- Geymsluþol: Best fyrir Dagsetning: Allar dagsetningar til og með 30.06.2022
- Lotunúmer: Öll lotunúmer
- Strikamerki: 5031532020018
- Nettómagn: 400 g
- Geymsluskilyrði: Frystivara
- Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru: Aðföng, Skútuvogi 7-9, 104 Reykjavík.
Þeir sem dreifa, selja Take Home Boneless Bucket eru verslanir Hagkaupa um land allt. Southern Fried Chicken Strips er í verslunum Bónus og Hagkaupa um land allt.
Viðskiptavinir sem keypt hafa ofangreinda vöru eru beðnir um að neyta hennar ekki og farga en einnig er hægt að skila henni í versluninni þar sem hún var keypt gegn endurgreiðslu.
Nánari upplýsingar veitir gæðastjóri Aðfanga í síma 530 5600 eða í gegnum netfangið gaedastjori[hja]adfong.is.