Gildistími rafræns gjafabréfs, sem er fyrir einstaklinga sem búa í húsnæði fyrir fatlað fólk á vegum velferðarsviðs Reykjavíkurborgar, hefur verið framlengdur til 31. ágúst. Gjafabréfið er upp á 20 þúsund krónur og það má nýta að vild.
Tilgangur rafræna gjafabréfsins er að stuðla að möguleikum fullorðins fólks sem býr í húsnæði fyrir fatlað fólk hjá Reykjavíkurborg til að ferðast innanlands. Einstaklingum er þó frjálst að ráðstafa upphæðinni eins og þeir kjósa sjálfir, til ferðalaga eða annarra hluta. Inneignin bætist við ferðagjöf stjórnvalda sem öllum landsmönnum barst síðastliðið sumar.
Gjöfin er í samræmi við meginreglur samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Hann felur í sér að fatlað fólk hafi tækifæri til þess að taka þátt í samfélaginu til jafns við aðra og fái frelsi til þess að taka eigin ákvarðanir. Reykjavíkurborg hefur innleitt hugmyndafræðina um sjálfstætt líf í sína starfsemi og er þessi útfærsla á nýtingu styrks stjórnvalda í samræmi við það.
Síðastliðið sumar bauð félags- og barnamálaráðuneytið sveitarfélögum að sækja um styrki til aukins félagsstarfs fyrir fullorðið fatlað fólks vegna áhrifa Covid-19. Velferðarsvið sótti um styrkinn fyrir fólk sem býr á heimilum fyrir fatlað fólk á vegum sviðsins. Í kjölfarið var ákveðið að notast yrði við rafrænt gjafakort. Verkefnið var unnið í samráði við Landssamtökin Þroskahjálp og í samstarfi við Yay.is sem hafði umsjón með ferðagjöf stjórnvalda. Yay.is bætti gjöfinni til fatlaðs fólks í húsnæði á vegum velferðarsviðs við þá þjónustu án endurgjalds.
Ef einstaklingur sem býr í húsnæði fyrir fatlað fólk í Reykjavík hefur ekki fengið rafræna gjafakortið með smáskilaboðum frá Yay.is eða notar ekki farsíma má hafa samband við Arne Friðrik Karlsson (arne.fridrik.karlsson@reykjavik.is) eða Katrínu Hörpu Ásgeirsdóttur (katrin.harpa.asgeirsdottir@reykjavik.is) til að leysa úr málinu.