Óskað er eftir tilnefningum til mannréttindaverðlauna Reykjavíkurborgar 2021. Tilnefna má einstaklinga, hópa, félagasamtök eða stofnanir sem á eftirtektarverðan hátt hafa staðið vörð um mannréttindi.
Tilnefningar ásamt rökstuðningi skulu berast á netfangið mannrettindi@reykjavik.is
Frestur til að skila tilnefningum er til 3. maí 2021.
Handhafi mannréttindaverðlauna Reykjavíkurborgar hlýtur að launum kr. 600.000,-
Verðlaunin verða afhent í Höfða af borgarstjóra Reykjavíkur þann 16. maí í tengslum við mannréttindadag Reykjavíkurborgar.
Markmið mannréttindaverðlaunanna er að vekja athygli á mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar og mikilvægi samfélags þar sem mannréttindi eru virt.
Dómnefnd til verðlaunanna er skipuð af mannréttinda-, nýsköpunar- og lýðræðisráði Reykjavíkurborgar til eins árs í senn. Hana skipa þrír einstaklingar sem hafa haft aðkomu að jafnréttis- og mannréttindamálum í sínum störfum.
Áður hafa hlotið mannréttindaverðlaun Reykjavíkurborgar:
Solaris hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi 2020
Móðurmál Samtök um tvítyngi 2019
Samtök kvenna af erlendum uppruna á Íslandi W.O.M.E.N. á Íslandi 2018
Með okkar augum 2017
Þórunn Ólafsdóttir 2016
Frú Ragnheiður 2015
Geðhjálp 2014
Kvennathvarfið 2013
List án landamæra 2012
Hinsegin dagar 2011
Blátt áfram 2010
Rauði Kross Íslands 2009
Alþjóðahús 2008